Innlent

Europol komið að rannsókn mansalsmálsins í Vík

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Húsið þar sem konurnar munu hafa starfað og búið.
Húsið þar sem konurnar munu hafa starfað og búið. Vísir/Þórhildur
Rannsókn lögreglunnar á Suðurlandi á mansalsmáli sem kom upp í Vík í Mýrdal í síðasta mánuði er mjög umfangsmikil. Búið er að yfirheyra á milli 12-14 einstaklinga og enn á eftir að taka skýrslur af nokkrum í viðbót. Svo gæti farið að lögreglan myndi yfirheyra yfir 20 manns að sögn Þorgríms Óla Sigurðssonar, yfirlögregluþjóns.

 

Héraðsdómur Suðurlands framlengdi á föstudaginn gæsluvarðhald yfir karlmanni sem grunaður er um að hafa haldið þremur konum í vinnuþrælkun í Vík. Samkvæmt úrskurði dómsins skal maðurinn sæta gæsluvarðhaldi í fjórar vikur til viðbótar en úrskurðurinn var kærður til Hæstaréttar. Þorgrímur Óli segir að niðurstaða Hæstaréttar liggi ekki fyrir en vonast eftir henni í vikunni.

Hægt á rannsókninni að aðeins er einn túlkur aðgengilegur

Maðurinn er frá Srí Lanka líkt og konurnar sem hann er grunaður um að hafa haldið í vinnuþrælkun. Hann er eigandi fyrirtækisins Vonta International sem var undirverktaki Icewear. Við rannsókn málsins hefur lögreglan þurft að njóta aðstoðar túlks en að sögn Þorgríms Óla hefur lögreglan aðeins aðgang að einum túlk sem talar sama tungumál og aðilar málsins.

„Það hefur því verið svolítið erfitt að fá túlkinn hingað því hann er í annarri vinnu sem hann þarf að sinna. Þetta hefur því kannski aðeins hægt á rannsókninni en við erum bara farin að skipuleggja okkur þannig að túlkurinn komist,“ segir Þorgrímur Óli.

Icewear keypti prjónaverksmiðjuna Víkurprjón í Vík í Mýrdal árið 2012. Vonta International var undirverktaki Icewear.Vísir/Þórhildur
Greint var frá því í byrjun mánaðarins að átta vitni hefðu gefið skýrslu fyrir dómi. Öll höfðu þau verið í vinnu hjá Vonta International en ástæðan fyrir því að þau báru vitni fyrir dómi er sú að þau gætu hugsanlega farið úr landi. Á meðal þeirra sem hafa gefið skýrslu fyrir dómi eru konurnar sem eru þolendur í málinu en Þorgrímur Óli segist þó halda að þær séu enn hér á landi.

500 klukkustundir og 15 þúsund kílómetrar

Alls hafa um 25 manns komið að rannsókn málsins að sögn Þorgríms Óla en alls eru fjórir lögreglumenn sem sinna engu öðru núna. Þar á meðal eru sérfræðingur frá mansalsteymi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og lögreglumaður frá fjármunabrotadeild.

„Ætli það hafi ekki farið svona um 500 klukkustundir hjá lögreglunni í þetta mál og við höfum ekið um 15 þúsund kílómetra í tengslm við rannsóknina. Svo jú, þetta er með því umfangsmeira sem við höfum fengið hingað inn á borð til okkar,“ segir Þorgrímur Óli.

Í tilkynningu frá lögreglunni vegna málsins á dögunum kom fram að hún hefði notið aðstoðar Europol. Þorgrímur Óli segir að óskað hafi verið eftir aðstoð þaðan til að kanna hvort að málið í Vík hefði einhverja slóð erlendis en ekkert hafi komið út úr því. Aðspurður hvenær rannsókn málsins ljúki segir Þorgrímur Óli erfitt að segja til um það en vonast til þess að það verði innan mánaðar.


Tengdar fréttir

Þrír þolendur í mansali í Vík

Ein kona til viðbótar er talin þolandi í mansalsmálinu í Vík í Mýrdal. Hún nýtur nú verndar eins og konurnar tvær sem var komið í skjól í aðgerðum lögreglu á fimmtudag fyrir viku. Konan er líka frá Srí Lanka.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×