Lífið

Eru þetta bestu sambandsslit allra tíma?

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Ljóst er að hinni ellefu ára snót er mikið niðri fyrir.
Ljóst er að hinni ellefu ára snót er mikið niðri fyrir. Vísir/getty/skjáskot
Tíst sem Texasmærin Madi Nickens sett inn á Twitter í gær tröllríður nú samfélagsmiðlinum.

Í tístinu birtir Nickens myndir af því þegar systir hennar, ellefu ára gömul, segir sínum áður heittelskaða Joey upp í gegnum smáskilaboð.

Þar segir hún ástæðuna vera orðróm um að hann hafi sést á göngu í garðinum með Natalie.

Inn í málið blandast drykkjarkaup og lyftur.

Látum myndirnar tala sínu máli. Þetta hljóta að vera bestu sambandsslit allra tíma. 

mynd/twitter





Fleiri fréttir

Sjá meira


×