Orðin lýðræði og þjóðin eru að verða hvers manns mantra í ólíklegustu málum. Ef menn vilja sýnast öðrum framsýnni og heiðarlegri, flagga þeir þessum orðum í tíma og ótíma. Það væri til dæmis ólýðræðislegt að setja saman framboðslista sem ekki hefði verið valinn af þjóðinni eftir vel auglýsta frambjóðendur.
Hins vegar er lýðræðislegt að allir fái að kjósa um hverjir fara á stjórnlagaþing, hverjir setjast á þing og hverjir verða borgarfulltrúar. Hver er svo niðurstaðan? Hún er sú að fólk kýs fólk með andlit sem það þekkir úr fjölmiðlum. Ekki endilega fjölmiðlafólkið sjálft þó að það sé líka með, heldur fólk með nafn og andlit sem menn kannast við þegar þeir skoða framboðslistana. Stjórnlaganefnd er gott dæmi um þetta, svo ágæt sem hún er.
Val á frambjóðendum Ef einhver legði til að frambjóðendur í næstu kosningum yrðu valdir af nefndum innan flokkanna yrði eflaust litið á það eins og gamaldags klíkufyrirkomulag. Menn myndu vísast velja vini sína, klíkubræður og klíkusystur. Tortryggnin yrði ofan á ef þetta yrði lagt til. En er úr háum söðli að detta?
Ég veit ekki hvernig þetta var áður í öðrum stjórnmálaflokkum, en í Sjálfstæðisflokknum var þetta á sínum tíma í höndum fimmtán manna fulltrúaráðs ef mig misminnir ekki. Það fóru fram skoðanakannanir í félögum og kjördæmum sem unnið var úr. Fyrrverandi formaður fulltrúaráðsins sagði mér að menn hefðu lagt metnað í að vera með fólk á öllum aldri og fólk sem þekkti vel stoðir samfélagsins, og menningarlíf. Í hverjum kosningum hefði verið skipt út einhverjum til að koma með nýtt blóð inn í hópinn. Ég er ekki frá því að þessi tilhögun yrði betri en það sem nú tíðkast. Hún yrði allavega ekki verri.
Hverjum treystum við? Ég hef áður minnt á Rögnu Árnadóttur sem dæmi um ráðherra sem var sóttur. Þetta var kona sem maður hafði aldrei séð og vissi ekki einu sinni að væri til. En hún var fagleg, yfirveguð, lét verkin tala og var nánast óumdeild. Óvíst er að hún hefði kært sig um að fara í framboð til Alþingis. Kannski eru fleiri Rögnur hér og þar sem myndu auka virðingu Alþingis með þekkingu sinni, vinnubrögðum og framkomu og sóma sér vel sem ráðherrar. Er ekki farsælast fyrir blessað lýðræðið og þjóðina sem alltaf er verið að vitna í, að fulltrúar hennar á Alþingi sé fólk sem hún treystir, og að það sé fólk sem hefur þekkingu og skilning á atvinnulífi, heilbrigðismálum, sjávarútvegi, iðnaði, utanríkismálum, menningarmálum og íþróttum, en þurfi ekki að reiða sig á ráðgjafa að öllu leyti?
Er það virkilega svo að við treystum fólki fyrir lífi okkar og limum af því að við höfum séð það í sjónvarpi, myndir af því í blöðum eða á netinu? Sé það svo, eigum við ekkert betra skilið.
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Margt í stefnuyfirlýsingu nýrrar ríkisstjórnar bendir til að hún geti staðið undir því markmiði sínu að hefja "nýja sókn í þágu lands og þjóðar“.
Meira
Konum á Íslandi fjölgaði um fimm í síðustu viku, en körlunum fækkaði að sama skapi. Þannig orðaði sænski skurðlæknirinn Gunnar Kratz það er rætt var við hann í úttekt í helgarblaði Fréttablaðsins. Kra...
Meira
Ekki er beinlínis hægt að segja að menn hafi skrökvað í kosningabaráttunni um stöðu ríkissjóðs og yfirvofandi hættu á greiðsluþroti þjóðarbúsins vegna gjaldeyrisskorts. En það á við talsmenn fráfarand...
Meira
Háskólaumhverfið eins og við þekkjum er um þrjú hundruð ára gamalt. Þótt prófessorar hafi fyrir löngu tekið upp á því að nota tæknina til að varpa upp glærum og festa hljóðnema við skyrtuflipana hefur...
Meira
Sumir vilja láta ríkið selja áfengi til að takmarka aðgengi fólks að því. Ég er ósammála en ég skil rökin. En í umræðunni má stundum heyra önnur rök: Að ríkiseinokun sé nauðsynleg til að tryggja gott ...
Meira
Jæja, það fer víst ekki framhjá neinum að í dag er haldinn hátíðlegur alþjóðlegur Eurovision-dagur um víða veröld og ósköp fátt sem flest okkar geta gert í því.
Meira
Mér hafa borist óvenju margar fyrirspurnir um munnmök undanfarið og þá sérstaklega um tott. Það er kannski ekki skrítið í ljósi þess hvernig munnmök eru stunduð í klámi og fólk svo reynir að leika slí...
Meira
Ein mesta meinsemd menntakerfis Íslendinga er hversu fáir nemendur velja starfs- og iðnnám. Félög atvinnurekanda hafa svo oft kallað á umbætur án þess að því hafi verið svarað að skömm er að.
Meira
Aðsókn í kennaranám hefur minnkað um helming. Fréttablaðið sagði frá því í gær að árið 2006 hefðu 419 manns sótt um að hefja kennaranám við Háskóla Íslands, en 203 í fyrra. Árið 2012 var aðeins 13 ums...
Meira
Nú þegar sumarið er komið bíðum við eftir sólinni sem yljar okkur og öllu öðru, hún glæðir gróðurinn lífi og það hleypur viss kátína í unga sem aldna.
Meira
Mæðradagurinn var á sunnudaginn með tilheyrandi yfirlýsingum á Facebook um hversu dásamlegar mæður fólk ætti almennt. Svo rammt kvað að fullyrðingunum um stórkostleika mæðranna að einhver benti á að þ...
Meira
Viðbrögð við ummælum Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, formanns Heimdallar, um bann við sunnudagsopnun vínbúða, hafa verið vægast sagt öfgakennd. Áslaug svaraði spurningu Fréttatímans og sagðist trúa a...
Meira
Eiturlyf. Sjálft orðið er hlaðið sprengikrafti: ?eitur? er það sem skaðar okkur en ?lyf? er það sem bætir líðan okkar til líkama og sálar. Annað orðið vísar til eyðingar, hitt til lækninga.
Meira
Ég er nýkominn frá Kanaríeyjum. Á suðurhluta Tenerife, þar sem eitt sinn var bara eyðimörk, er nú ferðamannaparadís með alls konar veitingastöðum og hótelum. Allt byggt frá grunni og vissulega missmek...
Meira
Í gær var fyrsta hrefnan drepin í Faxaflóa, rétt fyrir utan skoðunarlínuna svokölluðu. Í fyrra tókst að drepa fimmtíu og þrjú dýr og í ár ætla veiðimenn að gera enn betur. Þeir segja eftirspurnina mik...
Meira
Á Íslandi eru sjötíu og fjögur sveitarfélög. Þeim mætti fækka um sextíu og tvö samkvæmd tillögum svokallaðrar Verkefnastjórnar Samráðsvettvangs en þátttakendur í honum eru leiðtogar stjórnmálaflokka, ...
Meira
Þegar fréttist af Bjarna Benediktssyni og Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni í Krónunni í Mosfellsbæ að kaupa inn fyrir stjórnarmyndunarviðræðurnar í sveitinni sendu Samtök verzlunar og þjónustu formönnunum...
Meira
Í dag hefst árleg álfasala SÁÁ og stendur út vikuna. SÁÁ eru félagasamtök sem reka sjúkrahúsið Vog og fjölda annarra meðferðarstofnana. Álfasalan er liður í að fjármagna barna- og fjölskyldudeild SÁÁ....
Meira
Þegar maður horfir á enska sakamálamynd þátt í sjónvarpinu sem gerð er upp úr bók eftir Agöthu Christie er ánægjan ekki endilega fólgin í því að brjóta heilann um plottið – er það ekki alltaf un...
Meira
Þessi jákvæða þróun gefur þó ekki tilefni til að slakað sé á árvekni gagnvart þeirri umtalsverðu áhættu í fjármálakerfinu sem enn er til staðar.“
Meira
Eftirtektarverður árangur frumkvöðlanna sem að sprotafyrirtækinu CLARA standa sýnir í hnotskurn um hvers konar verðmæti er að tefla í þessum í geira nýsköpunar og tækni.
Meira