Sport

Eru geimverur að fylgjast með Redskins?

Robert Griffin III er leikstjórnandi Bleiknefja og vinsæll víðar en á jörðinni samkvæmt félagi hans.
Robert Griffin III er leikstjórnandi Bleiknefja og vinsæll víðar en á jörðinni samkvæmt félagi hans. vísir/getty
Svo virðist vera sem allur heimurinn fylgist með Washington Redskins og reyndar aðeins fleiri til.

NFL-lið Redskins gaf út skýrslu í vikunni þar sem greint var frá því hversu margir hefðu farið á síðu félagsins og fylgst með æfingabúðum liðsins.

Er óhætt að segja að niðurstöðurnar hafi verið sláandi. Samkvæmt Redskins komu 7,8 milljarðar einstaklinga inn á síðu félagsins. Þarna er ekki verið að tala um smelli heldur einstaklinga sem heimsóttu síðuna.

Þetta er ótrúlegur áhugi á félaginu á svo margan hátt. Sérstaklega þar sem jarðarbúar eru aðeins 7,3 milljarðar. Það virðast því 500 milljónir geimvera einnig fylgjast með liðinu.

Redskins er því augljóslega vinsælasta lið sólarkerfisins.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×