Heilsa

Ertu demisexual?

sigga dögg skrifar
Kynhneigð skiptist í marga flokka og getur verið ólík eftir rómantískum áhuga og kynferðislegum.
Kynhneigð skiptist í marga flokka og getur verið ólík eftir rómantískum áhuga og kynferðislegum. Vísir/Getty
Rómantískur áhugi og kynferðislegur áhugi þarf ekki að fara saman.

 

Kynhneigð þarf því oft að skoða heildstætt útfrá kynvitund einstaklinga og er fyrirbæri sem getur verið nokkuð fljótandi og margþætt.

 

Kynhneigðir sem talað er um í dag eru:

 

Gagnkynhneigð, kona laðast að karli eða karl að konu. Þá er einnig talað um cissexual eða cisgender þegar fólk upplifir sig af því kyni sem það fæddist líffræðilega. Það er til jafnvægis við umfjöllun og upplifun transgender einstaklinga og allra þeirra sem ekki passa inn í hið hefðbundna mót kynjaflokkunnar.

 

Gagnkynhneigð er ekki eðlileg, hún er algeng.

 

Samkynhneigð, kona laðast að konu eða karl að karli

Þetta er piparkökumanneskjan sem lýsir kynhneigð og kynvitund og sýnir hversu margar þátta þarf að tala tillit til þegar þessi mál eru rædd.Vísir/Skjáskot
Tvíkynhneigð, kona eða karl getur laðast að bæði konu eða karl, það er þó ekki merki um að þrír aðilar séu saman í sambandi eða að sambandi sé opið því slíkt fyrirkomulag getur gilt óháð kynhneigð. Það er frekar sambandformið heldur en kynhneigðin.

 

Pankynhneigð, einstaklingur laðast að persónuleika viðkomandi, óháð kynvitund. Í raun er þetta kynhneigð sem er hvað minnst útilokandi og á eflaust við töluvert fleiri en gera sér grein fyrir því.

 

Demisexual, einstaklingur sem þarf traust og rómantískan áhuga til að ná að tengjast manneskjunni áður en laðast að viðkomandi kynferðislega.

Asexual, einstaklingur laðast ekki kynferðislega að öðrum manneskjum en getur laðast að viðkomandi á rómantískan hátt. Þessir einstaklingar stunda sumir sjálfsfróun og jafnvel kynlíf en upplifa ekki kynferðislega aðlöðun í garð annarra manneskja. 

 

Það er deilt um gott íslenskt orð fyrir asexual en ókynheigð, vankynhneigð og kynlaus eru talin frekar ólýsandi.

 

Hér er heimildarmynd um einstaklinga sem eru asexual ásamt viðtölum við sérfræðinga.




Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×