Handbolti

Erlingur og Bjarki Már aftur heimsmeistarar

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Erlingur er á sínu öðru tímabili við stjórnvölinn hjá Füchse Berlin.
Erlingur er á sínu öðru tímabili við stjórnvölinn hjá Füchse Berlin. vísir/getty
Füchse Berlin varð í dag heimsmeistari félagsliða annað árið í röð eftir eins marks sigur, 29-28, á Paris Saint-Germain í Katar.

Bjarki Már Elísson var markahæstur í liði Berlínarrefanna ásamt Petar Nenadic en þeir skoruðu báðir fimm mörk.

Erlingur Richardsson þjálfar lið Füchse Berlin en þeir Bjarki tóku einnig þátt í því að vinna titilinn í fyrra.

Berlínarrefirnir voru þremur mörkum undir í hálfleik, 12-15, en létu það ekki á sig fá og náðu að knýja fram sigur í seinni hálfleik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×