Innlent

Erlendur sjómaður slasast í Hafnarfirði

Jakob Bjarnar skrifar
Hafnarfjarðarhöfn.
Hafnarfjarðarhöfn.
Vinnuslys var í morgun um klukkan níu, í Hafnarfjarðarhöfn, en skipverji á erlendu skipi féll milli þilja. Hann var fluttur á slysadeild til skoðunar en samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er ekki vitað nánar um ástand hans, á þessu stigi máls.

Slysadeild segir, í samtali við Vísi, að hann sé nú í rannsóknum og ekki séu komnar fram nægjanlegar niðurstöður til að skera úr um hvernig hann er á sig kominn eftir þetta slys.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×