Erill hjá lögreglu: Líkamsárásir, ölvunarakstur og árás á lögreglu Aðalsteinn Kjartansson skrifar 31. maí 2015 09:14 Fjöldi mála kom upp hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Vísir/Kolbeinn
Karlmaður var handtekinn á slysadeild Landspítalans eftir að hann pissaði í biðstofunni. Hann var vistaður í fangageymslu og verður rætt við hann síðar í dag, þegar runnið hefur af honum. Annar var handtekinn í Vesturbæ en hann var hálfnakinn á stigagangi í íbúðarhúsi . Að sögn lögreglu var maðurinn mjög ölvaður og gat ekki gert grein fyrir sér eða ferðum sínum, hann handtekinn og vistaður í fangageymslu og verður yfirheyrður síðar í dag Um klukkan fjögur í nótt veittist kona að lögreglu þar sem hún var í tökum dyravarða á skemmtistað í miðbænum. Konan var að sögn lögreglu mjög ölvuð og sparkaði aftan í læri lögreglumanns. Hún var handtekin í kjölfarið og færð í lögreglubíl en þar reyndi hún að sparka í andlit á lögreglumanni. Þá voru unnar skemmdir í Húsdýragarðinum í Laugardal. Nokkrir voru handsamaðir í garðinum í nótt en samkvæmt lögreglu var þeim sleppt eftir upplýsingaöflun. Ekki er ljóst hverjar skemmdirnar eru. Átta voru stöðvaðir ýmist grunaðir um lyfja eða ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu. Öllum var sleppt að lokinni blóðtöku hjá lögreglu. Tvær líkamsárásir voru tilkynntar í miðborginni. Í öðru atvikinu veittust fjórir karlmenn að einum, sem endaði á slysadeild. Vitað er um tvo gerendur í málinu, sem er til rannsóknar. Í hinu tilvikinu hlaut karlmaður minniháttar áverka eftir líkamsárás en ekki er vitað um gerendur.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Innlent Berserksgangur á gististað Innlent Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira