Körfubolti

Enginn í NBA-sögunni hefur grillað gömlu félagana eins og KD

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Kevin Durant.
Kevin Durant. Vísir/AP
Kevin Durant lék með liði Oklahoma City Thunder í níu NBA-tímabil og afrekaði næstum því allt með liðinu nema að verða NBA-meistari. Nú hefur hann endurskrifað NBA-söguna með framgöngu sinni í leikjum á móti Oklahoma City Thunder.

Hann varð fjórum sinnum stigakóngur NBA-deildinnar sem leikmaður Oklahoma City Thunder, valinn besti leikmaður NBA-deildarinnar 2013-14, komst fjórum sinnum í úrslit Vesturdeildarinnar og einu sinni alla leið í lokaúrslitin um NBA-titilinn.

Síðasta sumar ákvað Durant hinsvegar að yfirgefa félagið og semja við Golden State Warriors við litlar vinsældir hjá íbúum Oklahoma City og stuðningsmönnum Thunder-liðsins. Þeir brenndu búninginn hans og hafa púað á hann við hvert tækifæri.

Nú er Kevin Durant búinn að mæta sínum gömlu félögum í Oklahoma City Thunder þrisvar sinnum á tímabilinu og með frábærri frammistöðu sinni hefur hann afrekað eitthvað sem engum NBA-leikmanni hafði tekist áður á móti sínu gamla félagi.

Kevin Durant hefur skorað 39, 40 og 34 stig í leikjunum þremur og Golden State Warriors hefur unnið þá með 26, 21 og 26 stigum.

Hann er sá fyrsti í sögu NBA-deildarinnar til að skora 30 stig eða meira og fagna sigri í þremur fyrstu leikjum sínum á móti sínu gamla félagi.

Kareem Abdul-Jabbar (1975-1976) og Allen Iverson (2007-2008) skoruðu báðir yfir 30 stig í fyrstu þremur leikjum sínum á móti sínu gamla félagi en fögnuðu ekki sigri í þeim öllum.

Abdul-Jabbar var þar að spila með Los Angeles Lakers á móti Milwaukee Bucks (30 stig, 30 stig, 35 stig - 2 sigrar, 1 tap) en Allen Iverson gerði þetta með Denver Nuggets á móti D  (30 stig, 38 stig, 32 stig - 1 sigurr, 2 töp).

Kevin Durant hefur skorað 37,7 stig að meðaltali á 32,6 mínútum á móti sínu gamla félagi í vetur og hann hefur hitt úr 66 prósent skota sinna utan af velli og 90 prósent vítanna.

Gamli liðsfélagi hans, Russell Westbrook, er vissulega með þrennu að meðaltali í þessum þremur leikjum (31,3 stig, 10,7 fráköst og 10,3 stoðsendingar) en hefur aðeins hitt úr 41 prósent skota sinna og 30 prósent þriggja stiga skotanna. Hann er líka með 9 tapaða bolta að meðaltali og hefur auðvitað tapað öllum þremur leikjunum.  





Leikir Kevin Durant á móti Oklahoma City Thunder í vetur

3. nóvember - Golden State Warriors vann með 26 stigum (122-96)

39 stig á 31 mínútu

7 fráköst, 1 stoðsending

Hitti úr 63 prósent skota (15 af 24)

Hitti úr 7 af 11 þriggja stiga skotum

18. janúar - Golden State Warriors vann með 21 stigi (121-100)

40 stig á 34 mínútum

12 fráköst, 4 stoðsending

Hitti úr 81 prósent skota (13 af 1624)

Hitti úr 5 af 7 þriggja stiga skotum

11. febrúar - Golden State Warriors vann með 26 stigum (130-114)

34 stig á 33 mínútum

9 fráköst, 3 stoðsendingar

Hitti úr 57 prósent skota (12 af 21)

Hitti úr 3 af 6 þriggja stiga skotum

Meðaltöl Kevin Durant í leikjunum þremur:

37,7 stig í leik

32,6 mínútur í leik

9,3 fráköst í leik

2,7 stoðsendingar í leik

66 prósent skotnýting (40 af 61)

63 prósent þriggja stiga skotnýting (15 af 24)

90 prósent vítanýting (18 af 20)



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×