Innlent

Engin sátt í augsýn um lokaútfærslu Rammaáætlunar

Rætt er um að falla frá virkjun við Urriðafoss en halda fast við hinar tvær virkjanirnar í neðri hluta Þjórsár. Óvíst er hver niðurstaðan verður.
fréttablaðið/anton
Rætt er um að falla frá virkjun við Urriðafoss en halda fast við hinar tvær virkjanirnar í neðri hluta Þjórsár. Óvíst er hver niðurstaðan verður. fréttablaðið/anton fréttablaðið/anton
Illa gengur að ná saman um þingsályktunartillögu um Rammaáætlun um vernd og nýtingu náttúrusvæða. Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra og Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra kynntu áætlunina í haust. Deilur eru innan beggja stjórnarflokkanna um málið.

Svandís segir að málið sé á þingmálaskrá í byrjun febrúar. „Það er enn stefnt að því að halda við þá áætlun.“ Heimildir Fréttablaðsins herma hins vegar að það gæti reynst þrautin þyngri.

Mikil áhersla er lögð á að þingmenn stjórnarflokkanna styðji málið allir sem einn. Það gengur hins vegar illa, ekki síst af því að lítil samskipti eru á milli ólíkra hópa innan flokkanna, ekki síst Vinstri grænna. Helst er deilt um virkjanir í neðrihluta Þjórsár, en einnig um virkjanir á Reykjanesi. Þá telja sumir þingmenn Samfylkingarinnar að of mörg svæði fari í verndarflokk og vilja opna á frekari virkjanir.

Hvað Þjórsá varðar hefur komið til tals að heimila aðeins tvær af þeim þremur virkjunum sem þar voru fyrirhugaðar, Holts- og Hvammsvirkjun, en falla frá Urriðafossvirkjun. Það er, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins, talið koma til móts við þá gagnrýni að síðasttalda virkjunin hafi skaðleg áhrif á fiskistofna í ánni.

Óvíst er hvort Katrín Júlíusdóttir muni mæla fyrir málinu, líkt og ætlunin varð. Hún er á leið í fæðingarorlof og hefur varamaður tekið sæti hennar á Alþingi. Ljóst er að málið getur orðið ríkisstjórninni erfitt. Hún þarf að treysta á stuðning allra stjórnarliða, ætli henni að takast að gera áætlunina að veruleika. Sá stuðningur er ekki fyrir hendi nú og óljóst hvort hann næst. Unnið er að því að ná sátt um þá málamiðlun sem áætlunin er, en hingað til hefur það ekki tekist.

- kóp




Fleiri fréttir

Sjá meira


×