Engin haldbær sönnunargögn önnur en játning

Stöð 2 Innlent 05. september 2010 18:30
Friðrik Smári Björgvinsson, (t.v) yfirmaður rannsóknardeildar lögreglunnar á Höfuðborgarsvæðinu stýrir rannsókninni. Við hlið hans sitja Jón H.B Snorrason, aðstoðarlögreglustjóri og saksóknari og Björgvin Björgvinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá LRH.
Friðrik Smári Björgvinsson, (t.v) yfirmaður rannsóknardeildar lögreglunnar á Höfuðborgarsvæðinu stýrir rannsókninni. Við hlið hans sitja Jón H.B Snorrason, aðstoðarlögreglustjóri og saksóknari og Björgvin Björgvinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá LRH.
Þorbjörn Þórðarson skrifar:

Engin haldbær óumdeild sönnunargögn virðast liggja fyrir í manndrapsmálinu í Hafnarfirði, sem lögregla er tilbúin að greina frá, önnur en játning Gunnars Rúnars Sigurþórssonar. Leit lögreglu að morðvopninu hefur engan árangur borið.

Leit að morðvopninu sem Gunnar Rúnar Sigurþórsson notaði til að bana Hannesi Þór Helgasyni hófst aftur upp úr hádeginu og voru kafarar frá sérsveit ríkislögreglustjóra að fínkemba svæðið við smábátahöfnina í Hafnarfirði í allan dag. Laust fyrir sex í kvöld var morðvopnið ekki enn fundið. Gunnar Rúnar hefur samþykkt að sæta geðheilbrigðisrannsókn og verður hún framkvæmd eftir helgi.

Friðrik Smári Björgvinsson sagði í samtali við fréttastofu í dag að það væri ekki úrslitaatriði að morðvopnið fyndist þar sem játning lægi fyrir, hins vegar skipti það máli að morðvopnið kæmi í leitirnar upp á sönnun að gera enda vill lögreglan búa málið sem best undir ákærumeðferð hjá ríkissaksóknara. Lögregla neitar að sú afstaða að útiloka hlutdeild annarra byggist á játningu Gunnars Rúnars eingöngu og segir að það komi fleira til, en ekki hefur fengist upp gefið hvað það er.

Fréttastofa fékk staðfest í dag að meðal þess sem komið hefði fram við yfirheyrslur yfir Gunnari Rúnari var að uppáhaldskvikmynd hans væri V For Vendetta með bandarísku leikkonunni Natalie Portman, en hún fjallar um hnífaárásir. Þá er bókin Dauðarósir eftir Arnald Indriðason í miklu uppáhaldi hjá sakborningnum, en bókin fjallar að hluta til um ástríðuglæpi en ein af söguhetjum bókarinnar er ungur maður sem hefur verið utangátta í samfélaginu, var lagður í einelti og skilinn útundan. Eftir því sem fréttastofa kemst næst hefur þetta takmarkaða þýðingu fyrir rannsóknina, en kom engu að síður fram við bakgrunnsathugun á sakborningnum. Friðrik Smári vildi ekki tjá sig um þetta atriði í samtali við fréttastofu.

Það liggja ekki enn fyrir niðurstöður úr DNA-rannsókn á blóði sem fannst á skóm Gunnars Rúnars, en enn er beðið eftir niðurstöðum úr nokkrum rannsóknum frá Svíþjóð. Það hefur ekkert breyst þar. Á blaðamannafundinum í gær vék Friðrik Smári Björgvinsson að þessu atriði með svofelldum orðum: „Þau sýni og þær niðurstöður hafa ekki varpað neitt skýrara ljósi á málið. Við erum ekki búnir að fá niðurstöður úr öllum þessum sýnum sem send voru út."

Lögreglan veit hvernig hnífur var notaður en vill ekki svara spurningum um hvort um hefðbundið eldhúsáhald hafi verið að ræða eða annars konar eggvopn. Gunnar Rúnar var ekki samvinnuþýður við rannsóknina fram að játningu, samkvæmt heimildum fréttastofu, enda neitaði hann ávallt að hafa átt aðild að verknaðinum í fyrstu. Hátt í hundrað manns hafa verið yfirheyrðir vegna málsins og hafa um það bil fjörutíu lögreglumenn komið að rannsókninni. Lögregla svarar engu um undirbúningsathafnir af hálfu sakborningsins og hefur svarað því þannig að frekari rannsóknir muni leiða það í ljós. Þannig að ekki liggur fyrir hvort sakborningurinn hafi haft einbeittan ásetning í einhvern tíma um að verða hinum látna að bana. Málið verður sent til ákærumeðferðar hjá Valtý Sigurðssyni, ríkissaksóknara, um leið og rannsókn þess lýkur.


Fleiri fréttir - Innlent

Innlent 13. feb. 2012 06:30

Minnihluti fylgjandi Vaðlaheiðargöngum

Um 28 prósent landsmanna vilja að ráðist verði í gerð Vaðlaheiðarganga í ríkistryggðri ein...  

Meira
Innlent 13. feb. 2012 06:00

Rammaáætlun felur ekki í sér endanlega úthlutun

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra segir ekki rétt að halda því fram að í rammaáætlun...  

Meira
Innlent 13. feb. 2012 06:56

Loðnugangan komin vestur fyrir Höfn í Hornafirði

Aðal loðnugangan er nú komin vestur fyrir Höfn í Hornafirði og nálgast Hrollauglseyjar. Þa...  

Meira
Innlent 13. feb. 2012 06:00

Tæplega 44 prósent vilja falla frá ákæru

Þjóðin er klofin í tvær jafnar fylkingar í afstöðu sinni til þess hvort Alþingi eigi að dr...  

Meira
Innlent 13. feb. 2012 05:00

Minna ofbeldi í miðborginni

Alls urðu 1.578 fyrirtæki gjaldþrota á árinu 2011 og hafa aldrei verið fleiri á einu ári. ...  

Meira
Innlent 13. feb. 2012 05:00

Taldi sig eiga óuppgerð mál

Karlmaðurinn sem varð fyrir hrottalegri árás á heimili sínu á Þórshöfn aðfaranótt sunnudag...  

Meira
Innlent 13. feb. 2012 04:00

Tilgangurinn var ekki að valda skaða

Karl á áttræðisaldri hefur játað að hafa komið fyrir sprengjunni sem sprakk á Hverfisgötu,...  

Meira
Innlent 13. feb. 2012 04:00

Vilja skýr svör um bótaskyldu

Þrír bændur telja að Ísafjarðarbær beri ábyrgð á því tjóni sem þeir urðu fyrir af völdum d...  

Meira
Innlent 13. feb. 2012 03:13

Sammála um annað en ESB

Stofnfundur nýrrar breiðfylkingar um framboð til næstu alþingiskosninga var haldinn í gær....  

Meira
Innlent 13. feb. 2012 03:13

Vill alhliða lög gegn mismunun

Ísland þarf alhliða lög gegn mismunun og óháða jafnréttisnefnd til þess að hrinda ákvæðum ...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 20:15

Fyrri stofnfundur Breiðfylkingarinnar haldinn í dag

Í dag var haldinn stofnfundur Breiðfylkingarinnar sem fulltrúar Hreyfingarinnar, Frjálslyn...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 19:45

Rúmur meirihluti vill Ólaf Ragnar áfram

Rúmur meirihluti þjóðarinnar vill að Ólafur Ragnar Grímsson gefi aftur kost á sér í forset...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 18:46

Flestir vildu að Blár Ópal myndi vinna: "Leiðinlegt fyrir sigurlagið“

"Það er skrýtið að þetta hafi ekki verið skýrara,“ segir Ingólfur Þórarinsson, eða I...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 17:26

Hundur fastur í neti - tækjabíll frá slökkviliðinu kallaður til

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um hund sem væri fastur í netadræsum við Ægisg...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 13:51

Tæplega 80 þúsund atkvæði greidd í Eurovison

Alls voru greidd 79 þúsund atkvæði í Eurovision keppninni sem var sýnd á RÚV í gærkvöldi. ...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 10:53

Beit lögregluþjón

Karlmaður beit lögregluþjón til blóðs í morgun. Maðurinn var stöðaður á Laugaveginum rétt ...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 10:45

Huglausa ljónið féll niður hlera í miðri sýningu

"Samkvæmt öllum myndum og rannsóknum ætti hann að sleppa ótrúlega vel,“ segir leikar...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 10:19

Opið í Böggvistaðafjalli og í Oddsskarði

Lokað er í Bláfjöllum í dag vegna veðurs en þar er bæði hvasst og Blautt. Sömu sögu er að ...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 09:32

Settist upp í lögreglubíl og braut bílrúðu

Ölvaður og æstur maður var handtekinn við krá í Hafnarfirði eftir að hann braut rúðu í lög...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Fréttir / Innlent / Engin haldbær sönnunargögn önnur en játning