Tónlist

Elín Ey gefur út fyrsta lagið af nýrri plötu

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Elín Ey vinnur nú að nýrri plötu.
Elín Ey vinnur nú að nýrri plötu. Vísir/Íris Dögg Einarsdóttir
Elín Ey er án efa í hópi bestu trúbadúra landsins. En henni er margt til listana lagt og auk þess að plokka gítarinn hefur hún dýft tánum inn í heim raftónlistarinnar ásamt systrum sínum með hljómsveitinni Sísí Ey. Eitthvað hefur hún komist í rafstuð við þær tilraunir því í dag gaf hún út nýtt lag af væntanlegri plötu sem er meira í ætt við systra hljómsveitina en þá tónlist sem hún framkvæmir þegar hún er ein með gítarinn.

Nýja lagið heitir Bak við bak og er angurvær og nokkuð þjóðleg ballaða þar sem undraverður söngur hennar ómar yfir dáleiðandi hljóðgerfla flóði. Kannski ekkert svo langt frá þeirri tónlist sem Ásgeir Trausti hefur verið að dunda sér við að skapa.

Með Elínu í laginu er faðir hennar Eyþór Gunnarsson á hljómborð og Guðmundur Óskarsson sem hljóðritar og aðstoðar Elínu við að forrita takta. Guðmundur hefur hingað til verið þekktastur fyrir að plokka bassann með hljómsveitinni Hjaltalín.

Elín Ey er að leggja lokahönd á breiðskífu sem hún segir á Facebook síðu sinni að sé rétt handan við hornið. 

Lagið má heyra hér fyrir neðan;


Tengdar fréttir

Sísý Ey í samstarf við Andy Butler

Hljómsveitin Sísý Ey spilar á tónleikum með Hercules and Love Affair, hljómsveit Andys Butler. Sísý Ey gefur svo út smáskífu hjá plötufyrirtæki Butlers.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×