Fótbolti

Elías á skotskónum | Hammarby kastaði frá sér sigri

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Elías Már í leik með Vålerenga.
Elías Már í leik með Vålerenga. mynd/valerenga
Elías Már Ómarsson var í liði FK Göteborg í kvöld og skoraði í 3-2 sigri liðsins á Örebro.

Íslendingaliðið Hammarby kastaði frá sér unnum leik gegn Häcken í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Hammarby komst í 2-1 þegar stundarfjórðungur var eftir af leiknum en Häcken skoraði tvö mörk undir lokin og tryggði sér 2-3 sigur.

Ögmundur Kristinssin stóð í marki Hammarby og þeir Birkir Már Sævarsson og Arnór Smárason voru í byrjunarliði félagsins.

Elías Már Ómarsso var í liði FK Göteborg í kvöld og skoraði í 3-2 sigri liðsins á Örebro.

Kári Árnason var í liði Malmö og lék í 63 mínútur er liðið lagði Elfsborg, 1-0.

Malmö er í öðru sæti deildarinnar en Göteborg því fjórða. Hammarby er svo í tíunda sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×