Innlent

Eldur í skútu við Reykjavíkurhöfn

Bjarki Ármannsson skrifar
Frá Reykjavíkurhöfn,
Frá Reykjavíkurhöfn, Vísir/Vilhelm
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur verið kallað út vegna eldsvoða í skútu í Reykjavíkurhöfn. Skútan liggur við Grandagarð en lítið er vitað um umfang eldsins að svo stöddu.

Uppfært kl. 18:01 - Slökkviliðið er enn á vettvangi en hefur náð stjórn á eldinum. Talsverður eldur var um borð og eru reykkafarar enn að störfum. Ekki er talið að neinn hafi verið um borð í skútunni þegar eldur kviknaði. Lögregla rannsakar eldsupptök.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×