Sport

Eldri bróðir Dags Sigurðssonar orðinn framkvæmdastjóri Vals

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Dagur Sigurðsson var áður framkvæmdastjóri Vals eins og bróðir sinn.
Dagur Sigurðsson var áður framkvæmdastjóri Vals eins og bróðir sinn. vísir/epa
Það rennur svo sannarlega Valsblóð í æðum nýja framkvæmdastjóra Knattspyrnufélagsins Vals.

Valsmenn tilkynntu í dag að Lárus Bl. Sigurðsson muni taka við stöðu framkvæmdastjóra Vals næstkomandi mánudag sem er 16 janúar 2017.

Lárus er mörgum kunnur, hann er uppalinn Valsari, eins og hans fjölskylda öll, en hann er sonur Sigurðar Dagssonar og Ragnheiðar Lárusdóttur og bræður hans eru Dagur og Bjarki.

Dagur er eins og kunnugt er núverandi þjálfari Evrópumeistara Þýskalands og mun taka við japanska landsliðinu í sumar.

Sigurður Dagsson varð þrisvar sinnum Íslandsmeistari í knattspyrnu með Val eða árin 1966, 1967 og 1976.

Dagur Sigurðsson varð fimm sinnum Íslandsmeistari með Val í handbolta, fyrst 1991 og svo fjögur ár í röð frá 1993-1996 áður en hann fór út í atvinnumennsku.

Lárus Sigurðsson átti einnig sinn feril í boltanum en var leikmaður í bæði handbolta og fótbolta á sínum yngri árum og var markvörður og fyrirliði meistaraflokks karla.

Lárus lék 85 leiki í efstu deild fyrir Val á árunum 1994 til 1998 en hann var síðan varamarkvörður Hjörvars Hafliðasonar sumarið 1999. Lárus var fyrirliði Valsliðsins sumarið 1998. Lárus lék áður 36 leiki með Þór á Akureyri frá 1992 til 1993.

Lárus starfaði í fjármálageiranum í rúmlega áratug, en hefur verið forstjóri Bílanaust undanfarin ár.

„Vonumst við til að reynsla hann í atvinnulífinu, sem og góð tengsl innan félagsins muni nýtast Val í þeirri spennandi uppbyggingu sem framundan er á Hlíðarenda,“ segir í fréttatilkynningu Valsmanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×