Viðskipti erlent

Ekki nota Dropbox, Facebook eða Google

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Edward Snowden
Edward Snowden Vísir/Getty
Uppljóstrarinn Edward Snowden ráðleggur almenningi að nota ekki Dropbox og forðast að nota Facebook og Google, vilji fólk standa vörð um friðhelgi einkalífs síns. Þetta kom fram í viðtali við Snowden sem tekið var á viðburði á vegum tímaritsins The New Yorker um liðna helgi.

Snowden sagði að Dropbox, sem býður fólki upp á að geyma myndir, skjöl og önnur gögn á netinu, notist ekki við dulkóðun í þjónustu sinni. Síðan bjóði því enga vernd fyrir persónulegum gögnum fólks sem það hleður inn.

Þá standist Facebook og Google ekki öryggiskröfur nægjanlega vel að mati Snowden, þrátt fyrir að öryggisráðstafanir á síðunum hafi verið bættar mikið síðastliðin misseri.

Snowden var jafnframt í viðtali á viðburði á vegum blaðsins The Observer um helgina. Þar gagnrýndi hann bresk stjórnvöld harðlega fyrir það gríðarlega mikla eftirlit sem þau hafa með almenningi.

Hann sagði stjórnvöld í Bretlandi hafa mjög ríkar heimildir til að hafa eftirlit með fólki og í raun væri það svo að þau mættu allt. Upplýsingum væri safnað saman um almenning án þess að einstaklingar gætu farið með það fyrir dómstóla hvort að slíkt væri löglegt eða ekki. Snowden sagði slíkt eftirlitskerfi grafa undan réttarríkinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×