Innlent

Ekið á ljósastaur í Fossvogi

Höggið hefur verið mikið þegar bílnum var ekið á ljósastaurinn.
Höggið hefur verið mikið þegar bílnum var ekið á ljósastaurinn. Vísir/Vilhelm
Mikill hávaði heyrðist þegar jepplingi var ekið á ljósastaur í Efstalandi í Fossvogi um klukkan tvö í dag. Íbúar á svæðinu segjast hafa heyrt tvo mjög háværa hvelli og þustu margir þeirra út til að athuga málið.

Að sögn lögreglu liggja ekki fyrir upplýsingar um tildrög slyssins, en ljóst er að um töluvert högg hefur verið að ræða. Þar að auki er ekki vitað hve margir hafi verið í bílnum en enginn slasaðist.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×