Handbolti

Eisenach upp í efstu deild

heimasíða eisenach
Eisenach, lið Bjarka Más Elíssonar og Hannesar Jóns Jónssonar í þýsku 2. deildinni í handbolta, burstaði Eintracht Baunatal með 36 mörkum gegn 22. Eisenach tryggði sér þar með sæti í efstu deild á næsta tímabili.

Bæði Bjarki Már og Hannes skoruðu fimm mörk í leiknum, þar af skoraði Bjarki Már eitt úr vítakasti en hann er markahæsti leikmaður deildarinnar. Hannes Jón var með 100% skotnýtingu í leiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×