Eins og hungraðar rottur í búri

Gagnrýni
Fréttablaðið Gagnrýni 02. febrúar 2012 11:00
Öreigarnir í Lódz eftir Steve Sem-Sandberg.
Öreigarnir í Lódz eftir Steve Sem-Sandberg.
Friðrika Benónýsdóttir skrifar:
Bækur. Öreigarnir í Lódz. Steve Sem-Sandberg, Ísak Harðarson þýddi. Uppheimar.

Hverjum hefði dottið í hug að enn væri eitthvað ósagt um heimsstyrjöldina síðari og hörmungar hennar? Erum við ekki öll margbúin að lesa og sjá bækur og bíómyndir um allar hugsanlegar sögur úr henni? Greinilega ekki. Steve Sem-Sandberg hefur stúderað 3.000 blaðsíðna króníku sem skrifuð var á stríðsárunum í gyðingagettóinu í Lódz í Póllandi og samið upp úr henni skáldsögu sem skekur lesandann til grunna. Eiginlega ætti að vera miði á bókarkápunni sem varaði viðkvæma við innihaldinu svo nístandi eru lýsingarnar á örlögum fólksins í gettóinu. Liggur við að maður freistist til að nota ofnotuðu klisjuna um að enginn verði samur eftir lestur þessarar bókar.

Sagan spannar meirihluta stríðstímans, árin 1940-1945, árin frá því að gettóinu er lokað og gyðingum meinað að yfirgefa það og þar til búið er að flytja alla íbúana í burtu og útrýma þeim flestum. Fjölmargar persónur úr öllum kimum samfélagsins koma við sögu en í forgrunni er Formaðurinn, Mordechai Chaim Rumkowski, leiðtogi gyðinganna í gettóinu, flókin og sannferðug persóna sem á sér raunverulega fyrirmynd. Þegar upp er staðið er Rumkowski ein allra ógeðfelldasta persóna sem bókmenntirnar hafa alið en eins og svo oft í lífinu utan bókanna tekur það lesandann töluverðan tíma að átta sig á því. Aðrar persónur eiga sér ýmist raunverulegar fyrirmyndir eða ekki, eru misjafnlega geðþekkar en allar trúverðugar og feikivel skapaðar frá höfundarins hendi. Hér eru engar svart/hvítar persónulýsingar, hvorki englar né djöflar, allir eiga sér málsbætur en eru um leið óhugnanlegir. Baráttan um brauðið, í bókstaflegri merkingu, innilokunin í gettóinu, óttinn við dauðann og sjálfsbjargarviðleitnin gera dagfarsprúðasta fólk að óargadýrum sem glöð myndu selja frumburði sína ef þeim tækist að bjarga eigin skinni.

Textinn stekkur á milli beinharðra staðreynda og upptalningar, birtingar bréfa frá þessum tíma og lýsingum á ömurlegum aðstæðum fólks yfir í draumkennda fegurð og ljóðræna kafla þar sem veruleiki og draumur – eða öllu heldur hunguróráð – renna saman og lesandinn á fullt í fangi með að átta sig á því hvort er hvort. Stílfimi Sem-Sandbergs er með ólíkindum og kemst vel til skila í vandaðri þýðingu Ísaks Harðarsonar sem er mikið þrekvirki, þaulhugsuð og vel unnin.

Öreigarnir í Lódz er ekki auðveld bók aflestrar, veldur ógleði bæði í bókstaflegri og bókmenntalegri merkingu, en engum blöðum er um það að fletta að hér er á ferð eitt mesta stórvirki í norrænum bókmenntum síðari ára.

Niðurstaða: Stórvel unnin og áhrifamikil skáldsaga sem nístir lesanda inn að hjartarótum.

Fleiri fréttir - Gagnrýni

Gagnrýni 24. maí. 2012 10:30

Súrrealísk sumargjöf

Stórfín frumraun Tilbury, stappfull af grípandi popplögum og forvitnilegum textum. Tónlist...  

Meira
Gagnrýni 23. maí. 2012 20:00

Innan þægindarammans

Dark Shadows er nokkuð góð skemmtun sem skrifast að stórum hluta á Johnny Depp. Leikstjóri...  

Meira
Gagnrýni 23. maí. 2012 10:00

Gengu af göflunum

Algerlega frábærir tónleikar. Ég get ekki ímyndað mér að nokkur hafi orðið fyrir vonbrigðu...  

Meira
Gagnrýni 21. maí. 2012 10:00

Starað í poppið

Hvað fór úrskeiðis hjá þessum hæfileikaríka grínara? Borat var ósmekkleg frá upphafi til e...  

Meira
Gagnrýni 16. maí. 2012 11:00

Norah prófar eitthvað nýtt

Þokkalegasta plata sem aðdáendur Noruh Jones ættu að vera sáttir við. Danger Mouse býr til...  

Meira
Gagnrýni 11. maí. 2012 15:00

Út um þúfur

Aðdáendur Mel Gibson eiga betra skilið. Það er orðið svo skrambi erfitt að halda upp á han...  

Meira
Gagnrýni 10. maí. 2012 14:30

Endurvinnslukóngurinn

Jack White með eina af plötum ársins. Blunderbuss er lítið meistaraverk; þrettán lög, hver...  

Meira
Gagnrýni 09. maí. 2012 12:30

Barist í blokk

Það er ekki á hverjum degi sem indónesískar hasarmyndir rata í íslensk kvikmyndahús. En ek...  

Meira
Gagnrýni 08. maí. 2012 11:00

Fersk og óvænt plata

Nýjasta hljómsveitin hans Krumma með frábæra plötu. Hún kemur fersk inn í íslenska tónlist...  

Meira
Gagnrýni 03. maí. 2012 11:00

Bubbi í toppformi

Þorpið er, ef mér skjátlast ekki, 26. plata Bubba með nýju efni. Það eru ótrúleg afköst. O...  

Meira
Gagnrýni 02. maí. 2012 11:15

Leikræn og lipur fengitíð

Svar við bréfi Helgu er góð sýning með skýrri persónusköpun. Leikgerðin er mjög spennandi....  

Meira
Gagnrýni 01. maí. 2012 15:00

Árshátíð ofurhetja

The Avengers er alvöru árshátíð. Mikið hlegið og allir í sínu fínasta pússi. Hulk var þó v...  

Meira
Gagnrýni 20. apr. 2012 13:00

Skálkar á skólabekk

Mátulegur skammtur af formúluskopi. Allt gott og blessað. Þessi ágæti grínhasar krefst eng...  

Meira
Gagnrýni 18. apr. 2012 21:00

Rokkaður gospelblús

Blússveit Þóllýjar er skipuð söngkonunni Þollý Rósmunds, gítarleikaranum Magnúsi Axel Hans...  

Meira
Gagnrýni 18. apr. 2012 15:00

Rokk og ról

Fyndin og fjörug brelluveisla. Og hávaðinn er ægilegur. Battleship veit hvað hún vill vera...  

Meira
Gagnrýni 13. apr. 2012 20:00

Fram og aftur morðgátuna

Vel byggður og spennandi krimmi með ótrúlegu fléttumunstri og vel skrifuðum persónum. Nesb...  

Meira
Gagnrýni 13. apr. 2012 12:30

Vessa- og vandræðahúmor

Fortíðardaðrið er töluvert og aðdáendur myndanna geta eflaust skemmt sér sæmilega yfir Ame...  

Meira
Gagnrýni 12. apr. 2012 14:00

Vel útfært og kraftmikið

Muck stimplar sig inn með pottþéttri rokkplötu, lagasmíðarnar eru fínar, flutningur þéttur...  

Meira
Gagnrýni 11. apr. 2012 20:00

Farsaskrímslið snýr aftur

Tveir 11 ára piltar lumbra hvor á öðrum og tennur hljóta skaða af. Foreldrar drengjanna hi...  

Meira
Gagnrýni 11. apr. 2012 09:00

Hress skilnaðarplata frá drottningu poppsins

MDNA er tólfta plata Madonnu og sú fyrsta síðan Hard Candy kom út fyrir fjórum árum. Þetta...  

Meira
Gagnrýni 11. apr. 2012 08:00

Perlan skín enn

Það er gaman að fá þessa perlu aftur í bíó. Hún fjallar um atburði sem áttu sér stað í upp...  

Meira
Gagnrýni 10. apr. 2012 14:00

Falleg sýning um föðurleit

Saga Magneu, tengdamóður höfundarins Vals Freys Einarssonar og móður leikmynda- og búninga...  

Meira
Gagnrýni 10. apr. 2012 10:00

Tilkomumikil hávaðamessa

AMFJ er listamannsnafn Aðalsteins Jörundssonar. Hann hefur vakið athygli undanfarin ár fyr...  

Meira
Gagnrýni 02. apr. 2012 17:00

Björk hittir Áhöfnina á Halastjörnunni

Karl Olgeirs, Jón Rafns og Kristinn Snær djassa upp íslensk popplög úr ólíkum áttum. Eins ...  

Meira
Gagnrýni 29. mar. 2012 14:30

Þetta er ungt og leikur sér

Þessi risastóra mynd er byggð á vinsælli skáldsögu eftir Suzanne Collins og gerist í ótilg...  

Meira
Gagnrýni 27. mar. 2012 12:00

Meðalmennska á Manhattan

Leikararnir halda myndinni á floti. Þá er umhverfið notað á skemmtilegan máta og ætti að k...  

Meira
Tarot
Hugsaðu þér, eða skrifaðu spurningu og dragðu þér spádómsspil
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Lífið - Yfir / Gagnrýni / Eins og hungraðar rottur í búri