Einn nammidagur í viku Ellý Ármanns skrifar 11. janúar 2014 11:00 Tanja Ýr. Myndir/arnold og einkasafn
Fegurðardrottningin Tanja Ýr Ástþórsdóttir er með markmiðin á hreinu. Svo er hún líka í hollustunni en hún ætlar að vera harðari við sjálfa sig því hún ætlar að minnka skyndibitamat og fá sér sælgæti einu sinni í viku.,,Já, reyni alltaf að setja mér hófleg markmið sem ég get staðið við. Í ár ætla ég að hugsa vel um bæði líkama og sál, hreyfa mig reglulega og borða hollt. Hugarfarið skiptir líka mjög miklu máli og langar mig til að verða enn jákvæðari í ár. Ég ætla að verða betri útgáfa af sjálfri mér 2014," segir hún.Hvað með íþróttaiðkun árið framundan? ,,Ég ætla að vera dugleg að nýta mér líkamsræktarkortið sem ég á í World Class, mæta í ræktina og sækja hóptíma sem eru í boði þar. Svo er það ágætis hreyfing sem ég fæ þegar ég fer út með hundinn. Einnig ætla ég að reyna að nýta allan tíma sem mér gefst í að fara á snjóbretti núna í vetur og brimbretti í sumar- ef veðrið verður gott."Ætlar að minnka skyndibitamat Þegar talið berst að mataræðinu segir Tanja: ,,Ég hef alltaf vanið mig á að velja hollari kostinn. Borða hollt fæði og borða reglulega. Í ár ætla ég að vera enn harðari við sjálfa mig og minnka skyndibitamat og leyfa mér bara einn nammidag í viku. En þrátt fyrir það þá er allt gott í hófi."Frá vinstri: Helga Rún, Maren Sól, Tanja Ýr. Kynntist æðislegu fólkiHvað stendur uppúr hjá þér árið 2013? ,,Árið 2013 var mjög gott ár hjá mér. Ég byrjaði í nýjum skóla þar sem ég kynntist æðislegu fólki, fór til Neskaupstaðar í heimsókn til ömmu og afa, fór til Tenerife með fjölskyldunni, fékk sumarvinnu í Arion banka og svo hlaut ég titilinn Ungfrú Ísland í september. Sem sagt frábært ár að baki," segir hún áður en kvatt er.Hér getur þú séð þegar Tanja Ýr var krýnd ungfrú Ísland (myndband). Ungfrú Ísland 2013 - myndir.
Mest lesið Kátir tískukarlar hjá Kölska Tíska og hönnun Verslunarhjón selja glæsivillu í 108 Lífið Ein lausn er að liggja hlið við hlið og fróa sér Lífið Selur slapp úr hvalskjafti Lífið Gáfu dótturinni þrjú nöfn Lífið Okkar eigið Ísland: Skelltu sér í slímuga laug Lífið „Það spurði þig enginn“ Lífið Eitt stærsta bílabíó landsins fer fram um helgina Lífið Réði ekki við sig þegar hann hitti Lopez Lífið Sigga Ózk verður Ariana Grande og flytur til Noregs Tónlist Fleiri fréttir Selur slapp úr hvalskjafti Komo keppir á stærstu götubitakeppni í heimi Verslunarhjón selja glæsivillu í 108 Okkar eigið Ísland: Skelltu sér í slímuga laug Eitt stærsta bílabíó landsins fer fram um helgina „Það spurði þig enginn“ Mætt aftur til vinnu Ein lausn er að liggja hlið við hlið og fróa sér Fagurt einbýli í hjarta Vesturbæjar Ljúffengar vöfflur í nestisboxið Réði ekki við sig þegar hann hitti Lopez Ekki viss um að mamma hans hefði kosið hann Leyfir börnunum að sofa uppi í rúmi Smekklegasta fólk landsins skálaði í kaffi Skelltu sér úr háloftunum niður í Hörpu Klippt út af myndinni Ein litríkasta íbúð landsins til sölu Gæsun Maríu Thelmu tók óvænta U-beygju Gáfu dótturinni þrjú nöfn Stjörnulífið: Brúðkaupsafmæli á hlaupum og lokatónleikar Laufeyjar Var Díana prinsessa myrt? Ráðgjafi Bandaríkjaforseta í Hörpu Fyrsta starfið að fara út með hund Madonnu Tito Jackson er látinn „Hefur þú heyrt söguna af því þegar þú komst í heiminn?“ Ratleikur sem endaði með óvæntu brúðkaupi Ljósmyndaþáttur Ragnars Axelssonar: „Fjöllin hafa vakað lengur en í þúsund ár“ Sex heilnæm heilsuráð inn í haustið Krakkatía vikunnar: Litir, ljón og sjón Ástin blómstrar hjá Erpi og nýju kærustunni á Ítalíu Sjá meira