Fótbolti

Einn heppinn fær að gista hjá Iniesta á vínekrunni hans

Iniesta unir sér vel á vínekrunni.
Iniesta unir sér vel á vínekrunni.
Þegar Andres Iniesta er ekki að sparka bolta með Barcelona þá nýtur hann lífsins á vínekrunni sinni.

Miðjumaðurinn magnaði hefur nú sett í gang leik þar sem einn heppinn fær að gista heima hjá honum á vínekrunni.

Viðkomandi mun fá að drekka Iniesta-vínið með góðri máltíð og svo mun Iniesta fara með hann í skoðunarferð um heimabæ sinn, Fuentealbilla.

„Það var draumur fjölskyldunnar að byrja í vínræktinni og ég vil deila því með einhverjum sem er að leita að einstakri reynslu," segir Iniesta.

Keppnin gengur út á að segja í 100 orðum af hverju þú átt að fá þetta tækifæri. Það verða væntanlega margar umsóknir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×