Handbolti

Einn efnilegasti leikmaður landsins skrifar undir hjá FH

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Gísli Þorgeir og Sigurgeir Árni Ægisson, framkvæmdastjóri handknattleiksdeildar FH, handsala samninginn.
Gísli Þorgeir og Sigurgeir Árni Ægisson, framkvæmdastjóri handknattleiksdeildar FH, handsala samninginn. mynd/fh
Gísli Þorgeir Kristjánsson hefur skrifað undir nýjan samning við handknattleiksdeild FH.

Gísli, sem er fæddur árið 1999, steig sín fyrstu spor í meistaraflokki síðastliðinn vetur og átti góða spretti í liði FH.

Gísli, sem hefur leikið með öllum yngri landsliðum Íslands, lék 11 leiki í Olís-deildinni á síðasta tímabili og skoraði 18 mörk. Þá skoraði hann þrjú mörk í tveimur leikjum í úrslitakeppninni.

FH endaði í 6. sæti Olís-deildarinnar í fyrra og féll úr leik fyrir Aftureldingu í 8-liða úrslitum úrslitakeppninnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×