Handbolti

Einn af bestu hornamönnum heims á leið frá Kielce

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Cupic er lykilmaður hjá Kielce og pólska landsliðinu.
Cupic er lykilmaður hjá Kielce og pólska landsliðinu. vísir/afp
Ivan Cupic, hornamaðurinn frábæri, er á förum frá pólska meistaraliðinu Vive Targi Kielce eftir tímabilið. Bertus Servaas, forseti félagsins, hefur staðfest þessar fregnir.

Óvíst er hvað tekur við hjá Cupic en hann er m.a. orðaður við makedónska stórliðið Vardar Skopje.

Cupic hefur verið í herbúðum Kielce frá árinu 2012 en hann kom til pólska liðsins frá Rhein-Neckar Löwen í Þýskalandi. Á þessum tíma hefur Cupic þrívegis orðið pólskur meistari með Kielce og þrisvar sinnum unnið pólsku bikarkeppnina.

Cupic er einnig fastamaður í króatíska landsliðinu sem vann til bronsverðlauna á EM í Póllandi sem lauk fyrir skemmstu. Cupic skoraði 19 mörk í átta leikjum á EM.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×