Handbolti

Einkunnir strákanna okkar: Bjarki Már og Rúnar bestir en Janus fær lægstu einkunn

Bjarki Már Elísson átti frábæra innkomu í seinni hálfleik.
Bjarki Már Elísson átti frábæra innkomu í seinni hálfleik. vísir/epa
Ísland gerði jafntefli við Makedóníu, 27-27, í lokaumferð B-riðils HM 2017 í handbolta í kvöld. Jafnteflið þýðir að strákarnir okkar enda í fjórða sæti riðilsins og mæta Frakklandi í 16 liða úrsiltum í staðinn fyrir að enda í þriðja sæti og fá leik gegn Noregi.

Íslenska liðið var mest fimm mörkum yfir í seinni hálfleik, 24-19. Þá fór allt í lás og misstu okkar menn unninn leik niður í jafntefli á lokasprettinum.

Sjá einnig:Allt tryllt á Twitter: Af hverju tókstu ekki leikhlé, Geir?

Eftir hvern leik íslenska liðsins munu íþróttafréttamenn 365 gefa leikmönnum og þjálfaranum einkunnir.

Leikmenn og þjálfarar fá einkunn á bilinu 1-6 með umsögn, en neðst í fréttinni má sjá hvað hver einkunn þýðir.

Einkunnir Íslands gegn Makedóníu:

Björgvin Páll Gústavsson - 2

Fann ekki sama takt og framan af í mótinu. Auðvitað voru færin erfið en maður með hans reynslu verður að standa í 40 prósentum í leik þar sem allt er undir.

Guðjón Valur Sigurðsson - 3

Fyrirliðinn byrjaði ágætlega og skoraði úr hröðum upphlaupum, auðveld mörk. Hann virðist eiga erfitt uppdráttar af teig. Ekki hans besti landsleikur. Skipti við Bjarka Má Elísson í hálfleik.

Bjarki Már Gunnarsson - 4

Hann var í erfiðleikum í vörninni, sérstaklega framan af. Það útheimtir mikla orku að leika gegn liði eins og Makedóníu með sjö sóknarmenn. Hann leysti það samt prýðilega.

Ólafur Guðmundsson - 3

Ólafur er búinn að vera í íslenska landsliðinu frá árinu 2010. Hann var óagaður sóknarlega og tók slæmar ákvarðanir en skilaði sínu í vörninni. Það vantar mikið upp á að hann nái þeim hæðum sem vonast er eftir.

Janus Daði Smárason - 1

Janus Daði fór illa af stað í leiknum og komst aldrei í gang. Tæknifeilar og tapaðir boltar í massavís. Handboltaspekingar hafa margir haldið því fram að hann sé tilbúinn, en miðað við síðustu leiki er enn eitthvað í land hjá honum.

Rúnar Kárason - 5

Var langbesti leikmaður íslenska liðsins, sérstaklega í fyrri hálfleik. Rúnari virtist skorta orku í þeim síðari til að halda leikinn út. Ekki hægt að ætlast til þess að einn maður sé með liðið á herðum sér.

Arnór Þór Gunnarsson - 4

Arnór gerði það sem hann gat í leiknum og skoraði tvö góð mörk. Hann fær ekki færi af teig sem er eitthvað sem menn þurfa að skora. Þar er ekki bara við hann að sakast.

Kári Kristján Kristjánsson - 2

Línumaðurinn hefur engan veginn fundið taktinn á mótinu. Hann byrjaði ágætlega í dag en menn voru fljótir að lesa hann og loka á hann. Samherjar Kára bara finna hann ekki inn á línunni.

Ásgeir Örn Hallgrímsson - 2

Spilaði ekki mikið og virðist rúinn sjálfstrausti, hverju svo sem um er að kenna. Fær plús fyrir að fórna sér fyrir landsliðið meiddur en spurning hvort það hefði ekki verið betra að hvíla hann meira.

Arnar Freyr Arnarsson - 3

Skilaði sínu í vörninni en virkaði á köflum seinn. Auðvitað var pressan mikil á unga manninum og sviðið stórt. Hann þarf samt að gera mun betur í sókninni. Þetta er samt leikmaður sem getur komist í allra fremstu röð.

Arnór Atlason - 3

Setti leikinn vel upp í leikstjórnandastöðunni. Hann hélt breidd og reyndi hvað hann gat að stýra samherjum sínum á rétta staði en enginn vafi að Arnór Atlason hefur látið á sjá.

Guðmundur Hólmar Helgason -

Spilaði ekkert í leiknum en hugsanlega hefði hann mátt koma inn sé hann heill.

Gunnar Steinn Jónsson - 2

Kom inn í mjög erfiðri stöðu og gerði svo sem engar bombertur en leikmaður í hans stöðu verður einfaldlega að skila betri leik fyrir íslenska landsliðið.

Ómar Ingi Magnússon - 3

Ómar Ingi kom inn til að taka víti og kláraði það í sjálfu sér prýðilega. Hann virðist samt eiga afar langt í land með að verða sá leikmaður sem við bíðum eftir. Hann hefur hins vegar nægan tíma til að bæta úr því.

Aron Rafn Eðvarðsson - 4

Fín innkoma hjá markverðinum stóra og kannski var hann einn af þeim sem sá til þess að íslenska liðið náði einu stigi í leiknum. Varði sex skot og var með 43 prósent hlutfallsmarkvörslu.

Bjarki Már Elísson - 5

Frábær innkoma í seinni hálfleik. Ánægjulegt að sjá að þarna er kominn maður í vinstra hornið sem skorar af teig og nýtir færin sín mjög vel. Hann gerði hins vegar afdrifarík mistök í síðari hálfleik sem voru dýr þegar upp var staðið.

Geir Sveinsson - 3

Þjálfarinn var í sjálfu sér með ágætt upplegg fyrir leikinn og var greinilega vel undirbúinn fyrir sóknarleik Makedóna. Sóknarleikur Íslands aftur á móti var ekki sannfærandi eins og áður í mótinu. Skiptingarnar síðustu tíu mínúturnar voru út í hött. Þá spila menn með sitt sterkasta lið.

Útskýring á einkunnum:

6 - Heimsklassa frammistaða

5 - Frábær frammistaða

4 - Góð frammistaða

3 - Sæmileg frammistaða - skilaði sínu

2 - Ekki nógu góð frammistaða

1 - Slakur leikur


Tengdar fréttir

Umfjöllun: Makedónía - Ísland 27-27 | Strákarnir köstuðu frá sér sigrinum

Strákarnir okkar munu mæta Frökkum í Lille á laugardag en ekki Norðmönnum í Albertville eftir að hafa kastað frá sér sigri gegn Makedóníu. Algert hrun á lokamínútunum og liðið mátti jafnvel telja sig heppið að hafa sloppið með jafntefli. En liðið er komið áfram og á það var stefnt.

Aron Rafn: Þetta var skítt

Aron Rafn Eðvarðsson átti fína innkomu í íslenska markið gegn Makedóníu en það dugði ekki til.

Lino Cervar: Ég er með sterkt hjarta

Lino Cervar, þjálfari Makedóníu, var sáttur eftir jafntefli á móti Íslandi í Metz á HM í handbolta í kvöld en stigið tryggði Makedóníu þriðja sætið í riðlinum og forðaði þeim frá því að mæta Frökkum í sextán liða úrslitunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×