Fótbolti

Einkunnir Íslands gegn Tyrklandi: Kári bestur

Kári Árnason var frábær í íslensku vörninni.
Kári Árnason var frábær í íslensku vörninni. vísir/ernir
Ísland er komið með sjö stig í I-riðli undankeppni HM 2018 eftir öruggan 2-0 sigur á Tyrklandi á Laugardalsvellinum í kvöld.

Íslenska liðið var miklu sterkari aðilinn í leiknum og sigurinn var sanngjarn.

Ísland komst yfir á 42. mínútu þegar Theodór Elmar Bjarnason skaut boltanum í Ömer Toprak og inn.

Tveimur mínútum síðar skoraði Alfreð Finnbogason með góðu skoti eftir skalla Kára Árnasonar inn fyrir tyrknesku vörnina.

Kári stóð upp úr í góðu íslensku liði að mati Fréttablaðsins og Vísis. Einkunnagjöfina má sjá hér að neðan.

Einkunnir Íslands gegn Tyrklandi:

Byrjunarlið:

Hannes Þór Halldórsson, markvörður 6

Öruggur í úthlaupum og öllum sínum aðgerðum. Vörnin virðist afslappaðri með Hannes fyrir aftan sig. Reyndi ekki mikið á hann í kvöld.

Birkir Már Sævarsson, hægri bakvörður 7

Stóð vaktina vel í vörninni og var góður í sóknarleik íslenska liðsins, sérstaklega í fyrri hálfleik. Miklu betri frammistaða en gegn Finnum.

Kári Árnason, miðvörður 9 - Maður leiksins

Sýndi enn og aftur frábæran leik í íslensku landsliðstreyjunni. Frábær í vörn, stórhættulegur í loftinu og kemur sér í færi í hverjum leik. Átti frábæra stoðsendingu þegar Ísland komst í 2-0. Búinn að koma með beinum hætti að þremur mörkum í undankeppninni.

Ragnar Sigurðsson, miðvörður 8

Öruggur að vanda í vörn íslenska liðsins. Allar staðsetningar mjög góðar og tímasetti öll sín hlaup mjög vel.

Ari Freyr Skúlason, vinstri bakvörður 7

Óx ásmegin eftir því sem leið á leikinn og fór líka betur með boltann. Flottur leikur hjá bakverðinum.

Jóhann Berg Guðmundsson, hægri kantmaður 9

Frábær í fyrri hálfleik og var líklega enn betri í síðari hálfleik. Frábærar sendingar og afar duglegur í varnarvinnunni. Líklega einn hans allra besti landsleikur á ferlinum.

Birkir Bjarnason, miðjumaður 8

Leysti Aron Einar af með sóma, var duglegur og harður í horn að taka. Var óheppinn að fá gult spjald í fyrri hálfleik.

Gylfi Þór Sigurðsson, miðjumaður 9

Stórkostleg frammistaða eins og svo oft áður. Frábær í pressu og leiddi hana oft á tíðum, vann ófáa bolta, meiriháttar í bæði vörn og sókn. Enn einn stórleikurinn hjá Gylfa.

Theódór Elmar Bjarnason, vinstri kantmaður 8

Gerði hlutina einfalt og var í góðum takti við leikinn. Átti stóran þátt í fyrra markinu sem var skráð sem sjálfsmark. Frábært að eiga mann sem kemur inn af jafnmiklum krafti og Elmar.

Jón Daði Böðvarsson, framherji 7

Duglegur að vanda. En kom sér ekki í mörg færi og það kom heldur lítið úr hans leik.

Alfreð Finnbogason, framherji 8

Fór fremur illa með tvö góð færi í fyrri hálfleik áður en hann afgreiddi glæsilega markið sem kom Íslandi í 2-0 forystu. Afar duglegur en hefði getað bætt við marki úr dauðafæri í síðari hálfleik. Kominn með þrjú mörk í jafn mörgum leikjum í undankeppninni.

Varamenn:

Björn Bergmann Sigurðarson 6 - (Kom inn á fyrir Jón Daða Böðvarsson á 62. mínútu)

Var ekki mikið í boltanum eftir að hann kom inn á. Sinnti varnarvinnunni af samviskusemi.



Viðar Örn Kjartansson 6 - (Kom inn á Alfreð Finnbogason á 68. mínútu)

Sama og með Björn Bergmann.

Hörður Björgvin Magnússon - (Kom inn á fyrir Theodór Elmar Bjarnason á 86. mínútu)

Spilaði ekki nógu mikið til þess að fá einkunn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×