Enski boltinn

Eiginkona Valdes ósátt við Man. Utd

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Valdes í búningi Man. Utd.
Valdes í búningi Man. Utd. vísir/getty

Það lekur ekki beint gleðin af eiginkonu spænska markvarðarins, Victor Valdes, þessa dagana.

Valdes er fastur í herbúðum félagsins sem vill ekkert af honum vita. Nú um helgina fór allt liðið í hátíðarkvöldverð Unicef ásamt mökum. Valdes var eini leikmaður félagsins sem fékk ekki boð í kvöldverðinn og við það var eiginkonan ekki sátt.

Leikmenn félagsins voru mættir þarna til að safna peningum fyrir Unicef.

„Að eitt stærsta félag heims láti sér detta það í hug að bjóða manninum mínum ekki með í góðgerðarboð er ótrúlegt. Þetta var það síðasta sem ég átti von," skrifaði Yolanda Cardona á Instagram.

Valdes hefur verið í frystinum hjá Louis van Gaal, stjóra Man. Utd, síðan hann neitaði að spila fyrir varalið félagsins undir lok síðustu leiktíðar. Valdes fékk ekki einu sinni treyjunúmer fyrir tímabilið og er ekki leikmaður félagsins í huga Van Gaal.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×