Innlent

Eigendur Airbnb-íbúða í miðbænum kvarta undan vændi

Þorgeir Helgason skrifar
Snorri Birgisson hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Snorri Birgisson hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. vísir/anton
„Við erum að sjá mjög mörg tilvik um að vændi sé gert út frá leiguíbúðum, til dæmis á vegum Airbnb, hér á landi,“ segir Snorri Birgisson, rannsóknarlögreglumaður hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Í samtali við Fréttablaðið lýsti leigusali því hvernig það er að takast á við það þegar upp kemst um að vændi hafi verið stundað í íbúð hans. Tvær konur höfðu tekið íbúðina á leigu og auglýst sig á vændiskaupasíðu á netinu. Vændiskaupendum var vísað í íbúðina og þar fór vændisstarfsemin fram. Þar sem konurnar höfðu ekki gerst brotlegar við lög var ekki hægt að kveðja lögregluna á vettvang.

Leigusalinn taldi einfaldast að láta leigutímann renna út og vera frekar á varðbergi varðandi hverjum hann leigði íbúðina í framtíðinni.

Snorri Birgisson segir að lítið sé um að nágrannar og húseigendur tilkynni til lögreglu grun um vændi. Aðallega sé um að ræða erlenda gesti sem stoppi hér á landi í fimm til tíu dag og ferðist svo áfram um Norðurlöndin. Gríðarlega erfitt er að ná til þessara einstaklinga en þeir vilja almennt ekki ræða við lögregluna né veita henni nokkrar upplýsingar enda eru þeir í mjög viðkvæmri stöðu.

„Fólk er náttúrulega ekki alltaf meðvitað um í hvaða tilgangi fólk kemur hingað til lands eða áttar sig ekki á að vændi kunni að eiga sér stað,“ segir Snorri

Að sögn Sölva Melax, talsmanns Samtaka um skammtímaleigu á heimilum, hafa engin dæmi um vændi í leiguhúsnæði komið á þeirra borð.

„Við viljum frekara samstarf við lögregluna, hafi þetta komið upp í skammtímaleiguhúsnæði, og hvernig hjálpa megi leigusölum að forðast þetta,“ segir Sölvi.

Á síðustu árum hefur Snorri Birgisson stýrt verkefni undir handleiðslu innanríkisráðuneytisins. Verkefnið er fræðsluátak sem búið er að skila töluverðri vitundarvakningu um mansal og vændi. Það er unnið í samráði við velferðarráðuneytið, Starfsgreinasamband Íslands og mannréttindaskrifstofu Reykjavíkurborgar. Alls hafa 60 fundir verið haldnir og rúmlega tvö þúsund manns sótt þá.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.


Tengdar fréttir

Barnafjölskyldur hrekjast undan ferðamannaflóðinu í miðbænum

Þremur deildum af átta í leikskólanum Miðborg er lokað vegna fækkunar barna í miðbæ Reykjavíkur. Leikskólastjóri segir barnafjölskyldur hrekjast burt vegna hækkandi íbúðaleigu og fasteignaverðs meðfram ásókn ferðamanna í gistingu.

Skatturinn á eftir Airbnb

Danska ríkisstjórnin vill að vefsíðan Airbnb, sem er risastór leigumarkaður fyrir ferðamenn, veiti skattayfirvöldum í Danmörku upplýsingar um leigutekjur Dana.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×