Fótbolti

Eiður og félagar upp í 5. sætið

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Eiði og félögum gengur vel.
Eiði og félögum gengur vel. vísir/getty
Eiður Smári Guðjohnsen og félagar í kínverska úrvalsdeildarliðinu Shijiazhuang Yongchang unnu öruggan 0-3 sigur á Changchun Yatai í dag.

Sigurinn skilar Shijiazhuang upp í 5. sæti deildarinnar en þetta var þriðji sigur liðsins í síðustu fjórum leikjum.

Sambíumaðurinn Jacob Mulenga skoraði tvívegis fyrir Shijiazhuang og Mário Rondón frá Venesúela gerði eitt mark.

Eiður Smári kom inn á sem varamaður fyrir Rondón á 67. mínútu, skömmu eftir að Mulenga kom Shijiazhuang í 0-3.

Eiður Smári hefur leikið fimm deilarleiki fyrir Shijiazhuang síðan hann kom til liðsins frá Bolton fyrr í sumar. Landsliðsframherjinn á enn eftir að skora sitt fyrsta mark fyrir félagið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×