Enski boltinn

Eiður: „Jose kann ennþá að ná því besta út úr Chelsea“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Eiður Smári kom við sögu í tveimur leikjum á EM í Frakklandi í sumar. Hér er hann að kljást við Paul Pogba sem leikur með United.
Eiður Smári kom við sögu í tveimur leikjum á EM í Frakklandi í sumar. Hér er hann að kljást við Paul Pogba sem leikur með United. vísir/vilhelm
Eiður Smári Guðjohnsen, fyrrum leikmaður Chelsea, virðist hafa gaman af leiknum sem stendur nú yfir á Stamford Bridge.

Chelsea er að vinna Manchester United 4-0 en José Mourinho, núverandi þjálfari Man. Utd. og fyrrum þjálfari Chelsea stendur við hliðarlínuna og stýrir United í leiknum í dag.

José Mourinho var þjálfari Eiðs hjá Chelsea á sínum tíma en Eiður lék með liðinu á árunum 2000-2006 og skoraði 54 mörk fyrir liðið.

Eiður tísti eftirfarandi fyrir stundu: „Jose kann ennþá að ná því besta út úr Chelsea.“

Tístið hefur vakið gríðarlega athygli og er mjög vinsælt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×