Fótbolti

Eggert: Við vinnum England í vító

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
„Þetta er fullkominn dagur. Þetta er ævintýri og fyrir fótboltakall eins og mig sem hefur verið í fótboltanum allt mitt líf þá er þetta algjört ævintýri,“ sagði Eggert þegar Vísir hitti á hann við strandlengjuna við miðbæ Nice.

Honum þykir vænt um það starf sem er unnið í KSÍ og segir að árangurinn nú sé afrakstur áratugavinnu.

„Grasrótin hefur skilað sinni vinnu áratugum saman og klúbbarnir á Íslandi eru sífellt að skila af sér öflugum leikmönnum. Það er grunnurinn að því sem er að gerast í dag.“

Eggert var formaður KSÍ til margra ára og sat einnig í framkvæmdastjórn UEFA á sínum tíma. Hann þekkir því vel til í knattspyrnuhreyfingunni.

„Ég hef verið kaffærður í skilaboðum, símtölum og SMS-um þar sem fólk segir „Bravó, Ísland!“. Þeir vilja að við höldum áfram og leggjum Englendinga að velli núna.“

Eggert var stjórnarformaður West Ham þegar félagið var í eigu Íslendinga og er því vel þekktur í Englandi frá þeim tíma.

„Ég hef fengið mikið af símtölum frá enskum fréttamönnum og fór í viðtal í Sky þar sem ég sagði að Ísland væri búið að ná árangri sem væri betri en bjartsýnustu vonir stóðu til. Við færum því algjörlega áhyggjulausir í leikinn við England. Öll pressan er á þeim.“

„Formaður enska sambandsins lét meira að segja hafa eftir sér að til að þjálfarinn [Roy Hodgson] fengi nýjan samning þyrfti hann að fara í 8-liða úrslit. Það er enn aukin pressa á enska liðið og þjálfarann.“

„Fyrir mér er þetta galopinn leikur frá byrjun og ég held að við vinnum í vító. Það yrði ótrúlegt!“


Tengdar fréttir

Nú mega lömbin sparka

England og Ísland mætast í fyrsta mótsleik þjóðanna í sögunni á EM 2016 í Nice í kvöld. Í boði er farseðill í átta liða úrslitin á Evrópumótinu í Frakklandi. Síðast mættust liðin í vináttuleik á Manchester-stadium fyrir tólf árum þegar strákarnir okkar voru notaðir sem boxpúðar sem máttu ekki slá á móti.

EM-dagbókin: Af hverju getur Ísland ekki unnið England?

Ég stóð uppi í stúku á Allianz Riviera-vellinum, eða Hreiðrinu eins og við köllum það, og fylgdist með æfingu íslenska liðsins eftir blaðamannafundinn í Nice í gær. Menn voru bara að skokka í hringi eins og alltaf á þessum opnu fimmtán mínútum.

EM í dag: Nice í Nice

Það er leikdagur. Ísland - England í 16-liða úrslitum EM og það á frönsku rivíerunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×