Sport

Efsta fólk heimslistans bæði úr leik

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Ekki á hverjum degi sem Kerber og Murray detti bæði út.
Ekki á hverjum degi sem Kerber og Murray detti bæði út. vísir/getty
Andy Murray efsti tenniskarl heims og Angelique Kerber efsta tenniskona heims féllu bæði úr leik á opna ástralska meistaramótinu í tennis í dag.

Kerber steinlá gegn CoCo Vandeweghe í tveimur settum 6-2 og 6-3. Vandeweghe sem er frá Bandaríkjunum féll úr leik í fyrstu umferð á síðasta ári og hefur aldrei náð svona góðum árangri áður á stórmóti. Hún mætir Garbine Muguruza sem vann franska opna meistaramótið á síðasta ári í átta keppenda úrslitum.

Fyrr um daginn féll Skotinn Andy Murray úr leik gegn Mischa Zverev í fjórum settum, 7-5, 5-7,6-2 og 6-4.

Murray hefur aldrei unnið opna ástraska meistaramótið og þarf nú að bíða í eitt ár til viðbótar eftir tækifæri til að gera það.

Þjóðverjinn Zverev er í 50. sæti heimslistans og hefur Murray ekki tapað fyrir keppenda svo neðarlega á heimslistanum frá árinu 2006.

Novak Djokovic sem átti titil að verja í Melbourne er einnig fallinn úr keppni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×