Skoðun

Ef okkur er ekki sama um framtíð barnanna?…

Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar

Þá drepum við á bílvélinni þegar bíllinn er kyrrstæður, því það er óþarfi að brenna meira jarðefnaeldsneyti en þörf krefur.



Þá hjólum við, göngum og notum almenningssamgöngur eins og kostur er.



Þá minnkum við neyslu, því af flest allri framleiðslu og flutningi hlýst mengun.



Þá kaupum við vörur sem eru framleiddar nálægt heimabyggð okkar og hafa ekki ferðast um langan veg, því það sparar eldsneyti.



Þá endurnotum við, endurnýtum og flokkum allt sorp, því það er betra að nýta hráefni aftur og aftur í stað þess að taka nýtt úr auðlindum jarðar.



Þá hugsum við til barnanna okkar í öllum gjörðum okkar, því framtíðin er þeirra.



Ein helsta ógn barnanna okkar eru loftslagsbreytingar og meginorsakavaldur þeirra er brennsla á jarðefnaeldsneyti, svo sem olíu. Ef ekki verða tafarlausar breytingar munu börnin okkar og börn framtíðarinnar þurfa að kljást við eitt stærsta verkefni sem nokkur kynslóð hefur þurft að kljást við; alvarlegar afleiðingar loftslagsbreytinga.



Börn, ekki síst á hinum fátækari svæðum heims, munu missa heimili sín vegna hækkunar sjávarborðs, börn þurfa að kljást við auknar sveiflur í veðurfari og aukinn hita, íslensk börn þurfa jafnvel að standa frammi fyrir þeim veruleika með fjölskyldum sínum að Ísland verði ekki byggilegt sökum áhrifa loftlagsbreytinga á hafstrauma og fiskimið.



Réttindi barnanna

Börnin okkar eiga rétt á því að við hugsum um þeirra hag og látum af eigingirni neysluhyggjunnar.



Barnaheill – Save the Children á Íslandi eru mannréttindasamtök, sem vinna að réttindum og velferð barna með barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem leiðarljós í öllu starfi. Samtökin vilja að tryggt sé að öll heimsins börn í nútíð og framtíð njóti þeirra réttinda sem þeim ber samkvæmt Barnasáttmálanum. Mikilvægt er að stuðla að jafnrétti milli heimshluta og einnig milli kynslóða til að komandi kynslóðir geti notið réttinda sinna, búið við öryggi og vernd og uppfyllt þarfir sínar, ekki síður en núlifandi kynslóðir.



Til að jörðin verði áfram byggileg, þarf að nýta auðlindir með sjálfbærum hætti, minnka sóun, vinna gegn loftslagsbreytingum, vernda vistkerfi, vinna að jöfnuði í heiminum, gæta jafnræðis og uppræta fátækt. Jafnframt þarf að stunda lýðræðisleg vinnubrögð, efla þátttöku barna og ungmenna í samfélagsmálum og taka mið af fjölbreytileika samfélaga.



Við höfum stuttan tíma, því miður. Barnaheill vilja hvetja stjórnvöld og almenning allan til að vinna gegn loftslagsbreytingum og tryggja þannig börnum heimsins viðunandi framtíð.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Sjá meira


×