Tónlist

E-Zoo haldið á ný þrátt fyrir tvö dauðsföll í fyrra

Af hátíðinni í fyrra
Af hátíðinni í fyrra
Skipuleggjendur Electric Zoo tónlistarhátíðarinnar sem haldin er í New York-fylki ætla að halda hátíðina í ár, þrátt fyrir að lokadegi hátíðarinnar hafi verið aflýst í fyrra vegna tveggja dauðsfalla og fleiri sjúkrahúsinnlagna sem tengdust eiturlyfjanotkun.

Til þess að koma í veg fyrir að annað eins endurtaki sig mun öryggisgæsla á hátíðinni vera hert til muna, en þar verða dulbúnir öryggisverðir, hundar sem þefa uppi eiturlyf við alla innganga, og allir gestir sem kaupa miða þurfa að horfa á stutt myndbrot um hættur þess að neyta eiturlyfja. 

„Við erum gríðarlega spenntir fyrir því að Electric Zoo verði haldið í New York að nýju,“ sögðu Mike Bindra og Laura De Palma, skipuleggjendur hátíðarinnar, í tilkynningu.

„Undanfarin fimm ár hefur hátíðin vaxið og dafnað, og orðið ein af vinsælustu og viðurkenndustu alþjóðlegu tónlistarhátíðunum. Tækifærið til þess að efna til hátíðarinnar á nýjan leik er ábyrgð sem við tökum mjög alvarlega, og við hlökkum til að herða öryggisgæslu til þess að bæta reynslu þeirra sem sækja hátíðina til muna.“

Í september í fyrra, var lokadegi E-Zoo hátíðarinnar aflýst eftir að Olivia Rotondo, 20 ára, og Jeffrey Russ, 23 ára, létust vegna ofneyslu MDMA, betur þekkt sem eiturlyfið Mollý. Fjórir aðrir voru lagðir inn á spítala, 31 voru handteknir og að minnsta kosti ein kæra lá fyrir um kynferðisbrot.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×