Dyraverðirnir klippa á bindin 20. febrúar 2012 12:15 Að sögn Arnars Gíslasonar verður klippt á öll bindi á nýja skemmtistaðnum. „
Dyraverðirnir verða með skæri á sér og þeir klippa á bindin," segir Arnar Gíslason, einn af eigendum nýs skemmtistaðar sem kemur í stað Olivers á Laugaveginum. Engin bindi verða leyfð á staðnum enda verður hann í anda gamanmyndarinnar The Big Lebowski þar sem bindisnotkun var litin hornauga af aðalpersónunum. Að sögn Arnars, sem rekur einnig Enska barinn, opnar staðurinn upp úr miðjum mars og eru framkvæmdir í fullum gangi. Búið er að panta risastóran glymskratta frá útlöndum og fá gestirnir því tækifæri til að stjórna tónlistinni sjálfir. „Þetta verða bara slagarar og ef þú spilar sama lagið tvisvar verður refsing." Staðnum verður skipt upp í fjögur mismunandi svæði. Fremst verður keilubraut, sem hugsanlega verður bara upp á punt, í miðjunni verður bandarísk verönd, og innst í húsinu þar sem áður var dansgólfið verður bar og veitingastaður. Á efri hæðinni verður svo setustofa. Arnar segir að gestir staðarins geti valið það svæði eða leikmyndir sem henta þeim og það sé ekki skilyrði að hafa séð kvikmyndina. „Ef þú fílar ekki neitt svæði er annað hvort eitthvað að þér eða okkur," segir hann léttur. Meðeigendur Arnars eru þeir Logi Helgason, Andri Björnsson og Óli Már Ólason. Þeir tveir síðastnefndu hafa rekið skemmtistaðinn Vegamót. Inntur eftir því hvort þetta sé ekki dýrt verkefni segir Arnar: „Þetta er ekkert brjálæðislega dýrt. Þú getur gert allt á Íslandi og ég reyni að versla við íslensk fyrirtæki. En auðvitað kostar svona. Við erum líka að hugsa til fimmtán ára. Þá er allt í lagi að leggja aðeins í staðinn."-fb
Mest lesið Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Lífið Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Lífið „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Lífið Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Lífið Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Lífið Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Gagnrýni Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Lífið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Glansandi hár er nýi lúxusinn – af hverju eru allir að tala um „Gloss Hair“? Lífið samstarf David Hockney er látinn Menning Fleiri fréttir „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Sjá meira