Körfubolti

Dwayne Wade kemur nakinn fram | Myndir

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Forsíða Body Issue 2016.
Forsíða Body Issue 2016. mynd/espn
Dwayne Wade er fleira til lista lagt en að spila körfubolta.

Þessi 34 ára gamli leikmaður Miami Heat verður nefnilega á forsíðu svokallaðrar Body Issue útgáfu ESPN tímaritsins, þar sem ýmsir íþróttamenn sitja naktir fyrir. Body Issue kemur út árlega og hefur gert frá 2009.

„Þetta er nýtt fyrir mér. Þarna gat ég yfirstigið óttann. Þetta er ekki bara ég að sýna kroppinn minn, þetta er stærra en það. Þetta gefur öðrum vonandi sjálfstraust til að vera þeir sjálfir,“ sagði Wade í samtali við ESPN.

Auk Wade sátu 18 aðrir íþróttamenn fyrir í Body Issue í ár, þ.á.m. írski bardagakappinn Conor McGregor, ruðningskappinn Von Miller og körfuboltakonan Elena Delle Donne.

Þríþrautarkappinn Chris Mosier sat einnig fyrir en hann er fyrsta transmanneskjan til að gera það fyrir Body Issue.

Hér að neðan má sjá myndir af Dwayne Wade í öllu sínu veldi.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×