Duvnjak: Alfreð ræður hvar ég spila Tómas Þór Þórðarson skrifar 27. ágúst 2014 09:30 Domago Duvnjak styrkir meistaralið Kiel gríðarlega. vísir/getty
Króatinn Domagoj Duvnjak, sem af flestum er talinn besti handboltamaður heims, gekk í raðir Kiel í sumar frá Hamburg, en það er ein af ástæðum þess að lærisveinum AlfreðsGíslasonar er spáð mikilli velgengni á tímabilinu. Kiel er nú með nokkra af bestu leikmönnum heims í útilínu sinni, leikmenn á borð við Tékkann FilipJicha, Serbann MarkoVujin og auðvitað AronPálmarsson. „Ég hef aðlagast nýju liði vel, engin spurning, en vegna mikil álags í undirbúningi okkar hef ég ekki séð mikið af borginni Kiel. Aftur á móti erum við stutt frá Hamborg og þar hef ég spilað margsinnis,“ segir Duvnjak í viðtali við heimasíðu Meistaradeildarinnar. Kiel vann sinn fyrsta titil á dögunum þegar liðið lagði Dag Sigurðsson og lærisveina hans í Füchse Berlín í árlegri viðureign Þýskalandsmeistaranna gegn bikarmeisturunum. „Það var gaman að vinna Stórbikarinn. Það sáu samt allir að við eigum mikið verk eftir óunnið til að koma okkur almennilegt form og standa undir væntingum. Ég trúi samt að við munum eiga gæfuríkt tímabil,“ segir Króatinn, en Kiel tapaði svo fyrsta leik tímabilsins afar óvænt gegn Lemgo. Aðspurður hvort hlutverk hans verði öðruvísi í liði Kiel þar sem það er svo stútfullt af heimsklassa leikmönnum segir Duvnjak: „Fyrst og fremst líður mér bara vel í þessu liði. Í öðru lagi þá gerir enginn einn maður neitt. Auðvitað líður okkur eins og við eigum að vinna allar keppnir, en það þarf að mæta með réttu hugarfari til leiks. Við gerðum of mörg mistök á undirbúningstímabilinu þannig leikur liðsins er ekki alveg í jafnvægi.“ Duvnjak getur bæði spilað sem leikstjórnandi og vinstri skytta, en það sama má segja um Jicha og Aron Pálmarsson. Aron hefur þó nær eingöngu spilað sem leikstjórnandi. Aðspurður hvort hann vilji frekar spila hjá Kiel segir Domagoj Duvnjak: „Þú verður að spyrja þjálfarann okkar, Alfreð Gíslason. Hann ræður. Mér er alveg sama hvar ég spila bara á meðan okkur gengur vel.“
Handbolti Mest lesið Var hetjan framan af en stóð uppi sem skúrkurinn Fótbolti Stjarnan í vondum málum eftir tap í Írlandi Fótbolti Stúkan: „Sama hvað hann gerir ekki gefa honum gult spjald“ Íslenski boltinn Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Körfubolti Markalaust á Etihad Fótbolti Selfoss átti lítið í Íslandsmeistara Vals Handbolti Muna vel leikinn við Liverpool fyrir 60 árum Fótbolti Óviss um að hann sé velkominn á Oasis tónleikana Enski boltinn Sprungu úr hlátri þegar stóllinn hans Alberts gaf sig: „Ragnar Reykás er mættur“ Fótbolti Man City saknaði ekki þeirrar markahæstu og Arsenal tapaði í Svíþjóð Fótbolti Fleiri fréttir Selfoss átti lítið í Íslandsmeistara Vals „Stefnum á að vera í þessum efri hluta“ Uppgjörið: ÍR - ÍBV 22-22 | Heimakonur komnar á blað Haukur magnaður í sigri á Viktor Gísla og félögum Alfa Brá og Katrín Anna í landsliðið Tímabilið byrjar vel hjá Bjarka sem varð markahæstur í stórsigri Gummersbach gaf mikið eftir í seinni hálfleik Íslendingaliðið byrjar vel í titilvörninni Rakel Dögg: Lokuðum vel varnarlega og Alfa skildi liðin að sóknarlega Uppgjörið: Fram - Haukar 27-26 | Heimakonur unnu æsispennandi leik Fyrsti sigurinn hjá bæði Stjörnukonum og Framkörlum Segir að Haukur Þrastar geti gert mikið fyrir íslenska landsliðið á HM í janúar Stjarnan sótti ekki gull í greipar Eyjamanna „Þurfum að vera fljótir að læra“ Valur ekki í vandræðum í Vestmannaeyjum Íslenskt markaflóð í Svíþjóð Uppgjörið: Valur - Afturelding 31-34 | Frábær sigur gestanna „Í versta falli fer allt til fjandans, svo kemur nýr dagur“ „Alltaf gaman að spila í KA heimilinu” HK lagði Íslandsmeistarana og Grótta vann í Breiðholti Uppgjörið: KA - Haukar 26-34 | Stórsigur gestanna á Akureyri Haukur gekk frá lærisveinum Guðmundar Guðmundur Bragi gerði gæfumuninn Ein sú besta framlengir um þrjú ár Orri Freyr hafði betur gegn Viktori Gísla Birkir Fannar í Kaplakrika út leiktíðina Íslendingalið Kolstad mátti þola tap gegn stórliði Barcelona Þórir valdi enga úr gullliði Ólympíuleikanna í nýjasta hópinn Þórir ekki maður millivegarins: „Ég sem eyðilagði partýið“ Líður eins og hún geti sagt Þóri allt Sjá meira