Dramatískur sigur hjá KR | Haukar unnu Keflavík eftir framlengingu

Vísir Körfubolti 10. febrúar 2012 20:30
Justin Shouse sækir að körfu KR í kvöld.
Justin Shouse sækir að körfu KR í kvöld. mynd/anton
Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar:
KR vann dramatískan sigur á Stjörnunni 89-87 á heimavelli sínum í kvöld þar sem Joshua Brown tryggði liðinu stigin tvö með því að setja tvö vítaskot af þremur niður þegar tvær sekúndur voru eftir af leiknum.

Keith Cothran braut á Brown í þriggja stiga skoti og Brown klikkaði viljandi úr þriðja vítinu svo Stjarnan gæti ekki tekið leikhlé og byrjað með boltann inni á vallarhelmingi KR. Engu að síður fékk Justin Shouse fínt skot frá miðju til að tryggja Stjörnunni sigurinn þegar lokaflautið gall en skot hans geigaði.

Jafnt var á öllum tölum í fyrsta leikhluta en KR skoraði sjö af átta fyrstu stigum annars leikhluta og breyttu stöðunni úr 20-20 í 27-21. Áður en annar leikhluti var hálfnaður var munurinn kominn í átta stig 35-27. KR-ingar léku hraðann körfubolta, fengu opin færi sem þeir nýttu vel og léku fína vörn.

Martin Hermannsson var sjóðandi heitur og skoraði átta stig á sjö mínútum en takturinn fór úr leiknum er leið á annan leikhluta þar sem dæmdar voru villur í gríð og erg og leikurinn fór að miklu leyti fram á vítalínunni. KR tók 18 vítaskot í fyrri hálfleik og Stjarnan 15.

Stjarnan náði að minnka muninn í þrjú stig fyrir hálfleik 47-44. Ótrúlega lítill munur í ljósi þess að KR tók 25 fráköst gegn aðeins 10 Stjörnumanna í fyrri hálfleik en 15 tapaðir boltar hjá KR gegn aðeins 6 höfðu mikið með jafna stöðu að gera.

Það gjörsamlega kviknaði í Justin Shouse leikstjórnanda Stjörnunnar í þriðja leikhluta. Hann skoraði 16 stig í leikhlutanum og geta Stjörnumenn þakkað honum að hafa aðeins verið þremur stigum undir fyrir fjórða leikhluta 74-71.

Jafnræði var með liðunum allan fjórða leikhluta en Stjarnan jafnaði metin 81-81 þegar fimm mínútur voru eftir. Taugatitrings gætti hjá báðum liðum en Stjarnan komst yfir í fyrsta sinn frá því í fyrsta leikhluta 83-81 þegar þrjár og hálf mínúta var til leiksloka.

KR svaraði með fimm stigum í röð og en Marvin Valdimarsson jafnaði metin 87-87 þegar sextán sekúndur voru eftir en þá settu KR-ingar boltann í hendurnar á Brown sem tryggði sigurinn.

Mikil spenna var síðan á Ásvöllum þar sem Haukar unnu óvæntan sigur á Haukum eftir framlengdan leik.

Úrslit kvöldsins:

KR-Stjarnan 89-87 (20-20, 27-24, 27-27, 15-16)

KR: Joshua Brown 21/7 fráköst, Robert Lavon Ferguson 15/6 fráköst, Finnur Atli Magnusson 15/7 fráköst/5 stoðsendingar, Martin Hermannsson 13/4 fráköst, Hreggviður Magnússon 8, Emil Þór Jóhannsson 6/7 fráköst, Dejan Sencanski 5/6 stoðsendingar, Skarphéðinn Freyr Ingason 4, Ágúst Angantýsson 2, Björn Kristjánsson 0, Kristófer Acox 0, Ólafur Már Ægisson 0.

Stjarnan: Justin Shouse 28/4 fráköst, Keith Cothran 15/7 fráköst/10 stoðsendingar, Renato Lindmets 14/7 fráköst, Marvin Valdimarsson 12/6 fráköst, Jovan Zdravevski 9, Fannar Freyr Helgason 5, Guðjón Lárusson 4, Sigurjón Örn Lárusson 0, Dagur Kár Jónsson 0, Magnús Bjarki Guðmundsson 0.

Haukar-Keflavík 73-71 (17-22, 13-19, 22-12, 11-10, 10-8)

Haukar: Emil Barja 23/5 fráköst, Hayward Fain 13/10 fráköst/6 stoðsendingar, Christopher Smith 12/19 fráköst/6 varin skot, Alik Joseph-Pauline 11/4 fráköst/7 stoðsendingar, Örn Sigurðarson 6/6 fráköst, Steinar Aronsson 5, Davíð Páll Hermannsson 2/4 fráköst, Helgi Björn Einarsson 1, Guðmundur Kári Sævarsson 0, Haukur Óskarsson 0, Óskar Ingi Magnússon 0, Marel Örn Guðlaugsson 0.

Keflavík: Jarryd Cole 22/7 fráköst, Magnús Þór Gunnarsson 14, Kristoffer Douse 11/6 fráköst, Charles Michael Parker 9/13 fráköst/6 stoðsendingar, Valur Orri Valsson 6, Almar Stefán Guðbrandsson 4, Halldór Örn Halldórsson 3, Ragnar Gerald Albertsson 2, Guðmundur Auðunn Gunnarsson 0, Hafliði Már Brynjarsson 0, Andri Daníelsson 0, Gunnar H. Stefánsson 0.




Dramatískur sigur hjá KR | Haukar unnu Keflavík eftir framlengingu
mynd/anton
Hrafn: Þurfum að bæta okkar leik
"Við virðumst bara spila spennandi leiki núna. Þetta spilaðist ekki eins og við ætluðum okkur. Mér fannst við hafa alla burði til að vera mun meira yfir í fyrri hálfleik. Glötuð víti og glataðir boltar gegnum gangandi allan leikinn. Það þarf að greina hvað það er, hvort menn séu taugaóstyrkir eða værukærir. Við þurfum að pikka það upp á æfingum og jafnvel berja meira á hverjum öðrum og vera harðari," sagði Hrafn Kristjánsson þjálfari KR eftir leikinn

"Við fráköstum vel og vinnum okkur vel upp að körfunni en það skilar sér ekki nema menn setji niður vítinn. Það var gott að vinna þennan leik, við förum upp fyrir Stjörnuna og með betri innbyrðis árangur en við þurfum að bæta okkar leik ef við ætlum alla leið."

"Við fáum umdeild víti í lokin en við gerum vel í að halda boltanum þangað til í lokin og taka ákvörðun. Mögulega lenti hann á honum. Mér fannst við nokkuð klárir síðustu einu og hálfu mínútuna," sagði Hrafn sem tók leikhlé fyrir vítaskot Brown þar sem sett var upp að koma í veg fyrir að Stjarnan geti tekið leikhlé.

"Það hefði ekki skipt máli þó hann hefði bara sett annað vítið niður, hann hefði samt farið svona að," viðurkenndi Hrafn.


Kothran á ferðinni í kvöld.
Kothran á ferðinni í kvöld. mynd/anton
Teitur: Erum á réttri leið
"Þetta var hörkuleikur og sigurinn hefði getað lent hvoru megin sem var. Við förum illa að ráði okkar á mikilvægum augnablikum þar sem við hefðum getað komist fjórum stigum yfir. Við köstum þessu svolítið frá okkur," sagði Teitur Örlygsson þjálfari Stjörnunnar í leikslok.

"Mér fannst seinni hálfleikur mjög skrýtinn. Þeir skora að vild þegar vörnin okkar datt aðeins niður í þriðja leikhluta en við mjökum okkur aftur inn í leikinn."

"Mér fannst við þessi leikur skref upp á við hjá liðinu. Við erum á leiðinni þangað sem við ætlum okkur að vera. Að öllu eðlilegur hefðum við unnið þennan leik," sagði Teitur sem treysti dómaranum til að hafa dæmt rétt þegar villan á Colthran var dæmd í lokin.

"Simmi dæmir þetta ekki nema vera með þetta á hreinu. Ég sá þetta ekki en ég treysti Simma, hann dæmir ekki svona á lokasekúndunni nema vera mjög öruggur, hann var í frábærri stöðu til að sjá þetta," sagði Teitur að lokum.

Fleiri fréttir - Körfubolti

Körfubolti 24. maí. 2012 09:19

NBA í nótt: Philadelphia knúði fram oddaleik

Philadelphia heldur áfram að gera það gott í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta e...  

Meira
Körfubolti 24. maí. 2012 06:30

999 daga bið eftir leik á enda

Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta leikur í kvöld fyrsta leikinn sinn á Norðurlandamót...  

Meira
Körfubolti 23. maí. 2012 09:30

NBA í nótt: Öruggur sigur Miami

Miami er komið í 3-2 forystu í einvígi sínu gegn Indiana í undanúrslitum Austurdeildarinna...  

Meira
Körfubolti 22. maí. 2012 21:30

Skotbardagi eftir leik Thunder og Lakers

Allt varð vitlaust nærri íþróttahöllinni í Oklahoma á sama tíma og áhorfendur voru að yfir...  

Meira
Körfubolti 22. maí. 2012 09:37

NBA í nótt: Oklahoma sló út Lakers

Oklahoma City heldur áfram að gera það gott í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta ...  

Meira
Körfubolti 21. maí. 2012 17:30

Darrell Flake til Þorlákshafnar

Þórsarar hafa fengið liðsstyrk fyrir komandi leiktíð en Darrell Flake hefur gengið til lið...  

Meira
Körfubolti 21. maí. 2012 09:24

San Antonio í úrslit Vesturdeildar | LeBron James fór á kostum

LeBron James fór á kostum í liði Miami Heat í gær þegar liðið lagði Indian í undanúrslitum...  

Meira
Körfubolti 20. maí. 2012 23:00

NBA: Miami Heat jafnar einvígið gegn Indiana | James og Wade fóru á kostum

Lebron James og Dwyane Wade hafa fengið á sig töluverða gagnrýni að undanförnu og þá sérst...  

Meira
Körfubolti 20. maí. 2012 14:08

Stelpurnar misstu bronsið úr höndunum í fjórða leikhluta

Íslenska 18 ára landslið kvenna rétt missti af bronsinu eftir naumt þriggja stiga tap á mó...  

Meira
Körfubolti 20. maí. 2012 13:30

Þrír íslenskir krakkar komust í úrvalslið Norðurlandamótsins

Ísland átti þrjá leikmenn í úrvalsliðum á Norðurlandamóts unglinga í körfubolta í Svíþjóð ...  

Meira
Körfubolti 20. maí. 2012 11:09

Strákarnir töpuðu illa í úrslitaleiknum - 16 ára stelpurnar í 4. sæti

Íslenska 18 ára landsliðið í körfubolta varð að sætta sig við silfrið á Norðurlandamóti un...  

Meira
Körfubolti 20. maí. 2012 11:00

NBA: Los Angeles liðin misstu bæði niður góða forystu

Tveir leikir fóru fram í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í nótt og eftir hana eru bæði Los ...  

Meira
Körfubolti 20. maí. 2012 08:00

NM unglinga í körfu: Einn leikur um gull og tveir leikir um brons

Í dag fer fram lokadagurinn á Norðurlandamóti unglinga í körfubolta sem fer eins og venjul...  

Meira
Körfubolti 19. maí. 2012 19:54

Frábær sigur stelpnanna á Finnum dugði ekki - spila um bronsið

Íslenska 16 ára landslið kvenna er að gera frábæra hluti á Norðurlandamótinu undir stjórn ...  

Meira
Körfubolti 19. maí. 2012 14:45

Miami-liðið að brenna yfir - hættu við æfingu og gáfu engin viðtöl

Miami Heat er komið í slæm mál í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta eftir stórtap...  

Meira
Körfubolti 19. maí. 2012 12:40

Falur hættir með Keflavíkurkonur - Sigurður þjálfar bæði liðin

Sigurður Ingimundarson mun þjálfa bæði karla- og kvennalið Keflavíkur Iceland Express deil...  

Meira
Körfubolti 19. maí. 2012 11:00

NBA: Lakers minnkaði muninn og Philadelphia jafnaði

Tveir leikir fóru fram í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta í nótt og jókst spenn...  

Meira
Körfubolti 18. maí. 2012 11:25

Fyrsti sigur 18 ára stelpnanna í fimm ár - spila um bronsið

Íslenska 18 ára landslið kvenna vann langþráðan sigur á Norðurlandamótinu í morgun þegar s...  

Meira
Körfubolti 18. maí. 2012 11:12

Strákarnir spila um gullið - fóru illa með Norðmenn

Íslenska 18 ára landsliðið í körfubolta er að gera góða hluti á Norðurlandamótinu í körfub...  

Meira
Körfubolti 18. maí. 2012 09:15

NBA: Góður afmælisdagur hjá Parker - 16. sigur San Antonio í röð

Tony Parker hélt upp á þrítugsafmælið með því að skora 22 stig og hjálpa sínum mönnum í Sa...  

Meira
Körfubolti 18. maí. 2012 09:00

NBA: Útlitið svart hjá Miami eftir skell á móti Indiana

Indiana Pacers er komið í 2-1 á móti Miami Heat eftir öruggan 94-75 sigur í þriðja leik li...  

Meira
Körfubolti 17. maí. 2012 22:12

Þrír sigrar á Norðurlandamóti yngri landsliða í dag

Yngri landslið Íslands í körfubolta stóðu í ströngu á Norðurlandamótinu í körfubolta í Sví...  

Meira
Körfubolti 17. maí. 2012 15:30

Larry Bird náði einstakri þrennu

Larry Bird, forseti Indiana Pacers í NBA-deildinni í körfubolta, var í gær valinn besti fr...  

Meira
Körfubolti 17. maí. 2012 10:00

NBA í nótt: Oklahoma City komið í 2-0 á móti Lakers - Boston vann

Tveir leikir fóru fram í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta í nótt. Oklahoma City...  

Meira
Körfubolti 16. maí. 2012 22:45

Amare Stoudemire skráði sig í skóla í Miami

Þetta var erfitt tímabil fyrir Amare Stoudemire í NBA-deildinni í körfubolta og hann kórón...  

Meira
Körfubolti 16. maí. 2012 15:30

Derrick Rose gæti misst af öllu næsta tímabili

Derrick Rose sleit krossband í fyrsta leik Chicago Bulls í úrslitakeppni NBA-deildarinnar ...  

Meira
Körfubolti 16. maí. 2012 09:15

NBA: Auðvelt hjá San Antonio í fyrsta leik á móti Clippers

San Antonio Spurs hélt sigurgöngu sinni áfram í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolt...  

Meira
Körfubolti 16. maí. 2012 09:00

NBA: Indiana jafnaði á móti Miami

Indiana Pacers jafnaði metin í 1-1 í nótt í undanúrslitaeinvígi Austurdeildarinnar á móti ...  

Meira
Körfubolti 15. maí. 2012 10:30

Phil Jackson bíður við símann eftir atvinnutilboði

Phil Jackson, sigursælasti þjálfari í NBA deildinni í körfubolta, hefur áhuga á að taka að...  

Meira
Körfubolti 15. maí. 2012 09:00

Oklahoma rúllaði yfir LA Lakers | Boston tapaði á heimavelli

Oklahoma City Thunder sýndi styrk sinn gegn LA Lakers í nótt þegar liðin mættust...  

Meira
Körfubolti 14. maí. 2012 23:30

Heimsfriðurinn: Ætlar ekki að biðja Harden afsökunar fyrir einvígið

Metta World Peace, eða Heimsfriðurinn, er búinn að taka út sjö leikja bann fyrir að gefa J...  

Meira
Körfubolti 14. maí. 2012 17:53

Chris Bosh frá í ótilgreindan tíma

Miami Heat tilkynnti í dag að Chris Bosh muni ekki spila með liðinu á næstunni vegna meiðs...  

Meira
Körfubolti 14. maí. 2012 09:00

Kyrie Irving nýliði ársins í NBA-deildinni

Bandarískir fjölmiðlar hafa grafið það upp að Kyrie Irving, leikmaður Cleveland Cavaliers,...  

Meira
Körfubolti 13. maí. 2012 23:45

Nelson útskrifast fimmtíu árum of seint úr háskóla

Fyrir fimmtíu árum síðan yfirgaf Don Nelson háskólann í Iowa þó svo hann ætti mjög lítið e...  

Meira
Körfubolti 13. maí. 2012 22:25

Miami vann fyrsta leikinn gegn Indiana

Miami Heat er komið með forskot í rimmunni gegn Indiana Pacers í annarri umferð í úrslitak...  

Meira
Körfubolti 13. maí. 2012 20:37

Olympiacos vann Evrópudeildina í körfubolta

Gríska liðið Olympiacos sigraði í kvöld Evrópudeildina í körfubolta eftir magnaðan úrslita...  

Meira
Körfubolti 13. maí. 2012 19:45

Clippers vann oddaleikinn gegn Memphis

LA Clippers er komið áfram í 2. umferð í úrslitakeppni NBA eftir magnaðan sigur, 82-72, á ...  

Meira
Körfubolti 13. maí. 2012 10:59

Lakers vann oddaleikinn | Þreföld tvenna hjá Rondo

Los Angeles Lakers komst í aðra umferð í úrslitakeppni NBA í nótt er liðið lagði Denver í ...  

Meira
Körfubolti 12. maí. 2012 22:57

Shouse og Pálína leikmenn ársins í körfuboltanum

Stjörnumaðurinn Justin Shouse og Keflavíkurmærin Pálína Gunnlaugsdóttir voru valdir bestu ...  

Meira
Körfubolti 12. maí. 2012 17:41

James valinn verðmætasti leikmaður NBA-deildarinnar

LeBron James var í dag valinn verðmætasti leikmaður NBA-deildarinnar. Þetta er í þriðja si...  

Meira
Körfubolti 12. maí. 2012 11:31

Memphis tryggði sér oddaleik gegn Clippers

Liðin frá Los Angeles í NBA-deildinni eru ekki að gera sér auðvelt fyrir því þau eru bæði ...  

Meira
Körfubolti 11. maí. 2012 23:22

LeBron James valinn besti leikmaður NBA-deildarinnar í þriðja sinn

LeBron James, leikmaður Miami Heat, hefur verið valinn mikilvægasti leikmaður NBA-deildari...  

Meira
Körfubolti 11. maí. 2012 23:00

Andersen grunaður um vafasamt athæfi

Chris "Birdman" Andersen leikur ekkert með Denver Nuggets þessa dagana eftir að lögreglan ...  

Meira
Körfubolti 11. maí. 2012 21:30

Ewing gæti farið í vinnu hjá Jordan

Lélegasta lið allra tíma í NBA-deildinni, Charlotte Bobcats sem er í eigu Michael Jordan, ...  

Meira
Körfubolti 11. maí. 2012 20:09

Barcelona réð ekki við Spanoulis - Olympiacos í úrslitaleikinn

Það verður gríska liðið Olympiacos sem mætir CSKA Moskvu í úrslitaleiknum í Meistaradeild ...  

Meira
Körfubolti 11. maí. 2012 18:05

CSKA Moskva komst í úrslitaleikinn eftir æsispennandi leik

Rússneska félagið CSKA Moskva tryggði sér sæti í úrslitaleik Euroleague eftir 66-64 sigur ...  

Meira
Körfubolti 11. maí. 2012 09:10

Bulls hent í frí | Lakers á leið í oddaleik

Chicago Bulls var með besta árangur allra liða í deildarkeppni NBA-deildarinnar en þrátt f...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Sport / Körfubolti / Dramatískur sigur hjá KR | Haukar unnu Keflavík eftir framlengingu