Sport

Drakk 107 bjóra á einum degi

Boggs þegar hann var upp á sitt besta í boltanum.
Boggs þegar hann var upp á sitt besta í boltanum. vísir/getty
Enn er verið að segja goðsagnakenndar sögur af hafnaboltagoðsögninni Wade Boggs.

Boggs er í heiðurshöll hafnaboltans en hann lék lengst af með Boston Red Sox en náði að vinna World Series með NY Yankees.

Boggs var ekki bara þekktur fyrir góðan leik á vellinum heldur var hann ótrúlegur drykkjuhrútur. Hann virtist hreinlega geta drukkið endalaust.

Á dögunum fór í loftið gamanþáttur í Bandaríkjunum sem snérist um söguna af Boggs er hann drakk 64 bjóra í flugi milli stranda Bandaríkjanna.

Einn af leikurum þáttarins, It's Always Sunny in Philadelphia, upplýsti síðan að Boggs hefði tjáð sér að hann hefði mest náð að drekka 107 bjóra á einum degi. Það á náttúrulega ekki að vera hægt.

Fleiri hafa sagt sögur af Boggs eftir þáttinn og þar á meðal fyrrum félagi hans hjá Tampa Bay Rays.

„Við sátum saman í flugvél þegar flugfreyjan kemur til hans fyrir flugið með heilan kassa af bjór. Hann smellti kassanum undir sætið fyrir framan sig og brosti bara," sagði félaginn.

„Ég spurði hvað væri eiginlega í gangi. Við værum bara að fara í klukkutíma flug. Hann svaraði því til að hann ætti bjórinn einn. Bjórarnir hurfu svo ofan í hann á mettíma í fluginu og hann sagðist ekki verða fullur fyrr en eftir svona einn og hálfan kassa. Ég held hann hafi ekki einu sinni farið á salernið allt flugið."

Hér að neðan má sjá viðtal við leikarann og svo atriði úr þættinum þar sem Boggs leikur sjálfan sig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×