Körfubolti

Dóttir NBA-meistara fæddist fimm mánuðum fyrir tímann

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
J.R. Smith varð NBA-meistari með Cleveland í fyrra.
J.R. Smith varð NBA-meistari með Cleveland í fyrra. vísir/getty
J.R. Smith, leikmaður Cleveland Cavaliers í NBA-deildinni í körfubolta, deildi erfiðri lífsreynslu með heimsbyggðinni í gær.

Smith og eiginkona hans, Jewel Harris, áttu von á dóttur í júní. Dóttirin, sem fékk nafnið Dakota, kom hins vegar fimm mánuðum of snemma í heiminn og vó aðeins 0,45 kg.

„Við vitum að við erum ekki eina fjölskyldan sem er að ganga eða hefur gengið í gegnum þetta,“ sagði Harris í myndbandi sem þau hjónin birtu á Twitter.

„Það er þess vegna sem við ákváðum að deila þessu með ykkur. Vinsamlegast biðjið fyrir okkur og við munum gera það sama fyrir ykkur.“

Smith hefur ekkert leikið með Cleveland frá 20. desember vegna meiðsla á þumalfingri.

Smith, sem er 31 árs, kom til Cleveland frá New York Knicks í byrjun árs 2015. Hann varð NBA-meistari með Cleveland í fyrra.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×