Dóttir bæjarstjórans á bíl Kópavogsbæjar 10. febrúar 2011 08:00 AU 250. Á þessum bíl í eigu Kópavogsbæjar ekur dóttir bæjarstjórans.
Bíll sem Kópavogsbær leggur Guðrúnu Pálsdóttur bæjarstjóra til er notaður af nítján ára dóttur hennar. Sjálf notar Guðrún stundum aðra bíla sem bærinn á. Guðrún kveðst hafa rætt við endurskoðendur og lögfræðinga um notkunina af bílnum sem sé hluti af launakjörum hennar. „Þeir segja að svo framarlega sem það sé ekki tekið fram í ráðningarsamningi að afnotin af bifreiðinni séu bundin við eitt ákveðið nafn þá geti nánasta fjölskylda keyrt hana," útskýrir Guðrún. Hafsteinn Karlsson, forseti bæjarstjórnar, kveðst hafa heyrt að stundum noti Guðrún bíla úr þjónustuveri bæjarins. „Mér skilst að hún hafi eitthvað gert það þegar hún hefur ekki verið á bílnum. Mér finnst eðlilegt að hún noti bílinn sem hún hefur til umráða. Við sköffum bíl og þá er auðvitað ætlast til að sá bíll sé notaður í þágu bæjarins," segir Hafsteinn sem þó undirstrikar að engin skilmálar í ráðningarsamningi bæjarstjórans komi í veg fyrir að hún noti bílinn í einkaerindum. Guðrún segir að sé hún ekki á umræddum bíl, Toyota Corolla árgerð 2006, sé hún iðulega á jeppa í sinni eigu í vinnunni. Í nokkur skipti hafi hún notað bíla úr þjónustuverinu. Þá hafi aðrir starfsmenn oftast farið með henni í bíl og hún þá ein kvittað fyrir notkuninni. „Ég get fullyrt að ég hef ekki lagt í vana minn að misnota eigur Kópavogsbæjar. Ég mun gæta þess að ég mun aldrei aftur kvitta fyrir einum eða neinum bíl úr þjónustuverinu þegar ég fer á fundi með öðrum starfsmönnum," segir Guðrún. Rekstur bíls bæjarstjórans er greiddur úr bæjarsjóði - þar með talið bensín sem hún hefur sérstakt bensínkort fyrir. Dóttir hennar sækir framhaldsskóla í Reykjavík og er stundum á Toyotunni. Hún getur einnig notað bensínkortið. „Ef dóttir mín hefur þurft að setja bensín á bílinn þá er það undantekningar tilfelli," segir bæjarstjórinn. -gar
Mest lesið Gengur stolt frá borði reynslunni ríkari Innlent Segist saklaus Innlent Ný lög séu eitt af mörgum skrefum sem þurfi að taka Innlent „Öryggi okkar fólks það eina sem skiptir máli“ Innlent „Allt lýðræðið þurrkað út“ Innlent „Eins og best verður á kosið í heiminum“ Innlent Óvissustig í Súðavíkurhlíð Innlent Axel segist fórnarlamb subbulegra og fullkomlega tilhæfulausra ærumeiðinga Innlent Bjargað af þakinu eftir að bíllinn fór í kaf Innlent Lilja lagði til breytingu á formennsku þingflokks Innlent Fleiri fréttir Ný lög séu eitt af mörgum skrefum sem þurfi að taka Gengur stolt frá borði reynslunni ríkari Óvissustig í Súðavíkurhlíð „Öryggi okkar fólks það eina sem skiptir máli“ „Eins og best verður á kosið í heiminum“ Besta fimleikafólk Danmerkur gefur góð ráð og sýnir á Íslandi „Allt lýðræðið þurrkað út“ Lilja lagði til breytingu á formennsku þingflokks Nýr listi Samfylkingarinnar í Árborg kynntur Segist saklaus Djúpstæður ágreiningur og íþróttasalur umbreytist í tónleikahöll Bjargað af þakinu eftir að bíllinn fór í kaf Úthlutaði 91 milljón til félagasamtaka Þungar refsingar undir í máli sem fer enn einn hringinn Sakar minnihluta um ódýra pólitík í aðdraganda kosninga „Þetta þýðir einfaldlega lengri biðtími“ Rúv er óháð hagsmunum stjórnmála og einkaaðila Þarf að greiða þriggja milljóna málskostnað parsins Stefán Vagn leiðir þingflokk Framsóknarflokksins Axel segist fórnarlamb subbulegra og fullkomlega tilhæfulausra ærumeiðinga Skólameistarinn fær ekki að leiða ráðherra til vitnis Refsingar Shamsudin-bræðra og Samúels þyngdar Sýknudómur í hryðjuverkamálinu ómerktur Stofna óháðan flokk og segja að Hildur muni víkja þeim úr nefndum og ráðum Fyrsti listi Viðreisnar í Reykjanesbæ kynntur Staðan ekki breyst í samræmi við lýsingar ráðherra Bærinn vilji taka hluta Smáralindar á leigu fyrir 1,5 milljarða Orðhengilsháttur vill einkenna ESB-umræðuna Lítið breytt staða á bráðamóttökunni Brynja Dan í óvissu um oddvitasætið í Garðabæ Sjá meira