Innlent

Dorrit gerði ráð fyrir að Ólafur yrði ekki forseti

Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar
Ólafur Ragnar og Dorrit eru glæsileg hjón.
Ólafur Ragnar og Dorrit eru glæsileg hjón. MYND/ANTON BRINK
Dorrit Moussaieff forsetafrú flutti lögheimili sitt til Bretlands þegar hún taldi ekki vera horfur á því að Ólafur Ragnar yrði forseti. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem hún sendi fyrir stundu.

Út frá þessu gerði Dorrit ráð fyrir að geta sinnt störfum sínum í London meira. Einkum í ljósi þess að foreldrar hennar, sem eru búsettir þar, eru nú háaldraðir. Þeir eru skartgripasafnarar og er fjölskyldan vellauðug. Eignir fjölskyldunnar eru metnar á tugi milljarða og hefur hún meðal annars ratað á lista Times um auðugustu fjölskyldur heims. 

Hér er yfirlýsing Dorritar í heild sinni:



Vegna frétta um breytingu á lögheimili mínu í fyrra vil ég taka eftirfarandi fram:

Þegar horfur voru á að eiginmaður minn yrði ekki lengur forseti gerði ég ráðstafanir til að geta sinnt meira fyrri störfum mínum í London, einkum í ljósi þess að foreldrar mínir, sem stjórnað hafa fjölskyldufyrirtækinu, eru nú háaldraðir.

Breytingin var gerð samkvæmt ráðleggingum lögfræðinga á grundvelli eftirfarandi lagaákvæða:

„Ákvæði 7. gr. lögheimilislaga um að hjón eigi saman lögheimili verður að skoða í tengslum við ákvæði annarra laga sem fjalla um heimili, heimilisfesti og aðsetur. Má í því sambandi t.d. nefna ákvæði 2. mgr. 63. gr. tekjuskattslaga nr. 90/2003, sbr. 1. gr. sömu laga. Í þessum ákvæðum er fjallað um heimilisfesti manna á Íslandi og kemur fram í 63. gr., sem fjallar um hjón, að svo geti verið ástatt hjá hjónum að annar makinn sé skattskyldur ótakmarkað vegna heimilisfesti hér á landi, þ.e. með lögheimili, en hinn makinn með takmarkaða skattskyldu, þ.e. ekki með lögheimili hér á landi vegna ákvæða samninga Íslands við önnur ríki eða af öðrum ástæðum. Ákvæði 63. greinarinnar eiga einkum við erlenda ríkisborgara og með samningum við önnur ríki er t.d. átt við ákvæði tvísköttunarsamninga. Þá er rétt að vekja athygli á því að samkvæmt lögum um tilkynningar aðsetursskipta nr. 73/1952 eru strangar reglur um að tilkynna skuli um aðseturskipti.“


Tengdar fréttir

Ólafur og Dorrit með sitthvort lögheimilið

Lögheimili Dorritar Moussaieff er nú í Bretlandi. Samkvæmt lögum þurfa hjón að slíta samvistum ef annað flytur. Ólafur og Dorrit eru þó enn gift, samkvæmt upplýsingum frá Bessastöðum. Ástæðan er heimili og fjölskylda hennar í London.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×