Bíó og sjónvarp

Die Hard-fíkill keypti heilsíðu auglýsingu til að kynna hugmynd sína að næstu ævintýrum John McClane

Birgir Olgeirsson skrifar
Það virðist vera mikill áhugi fyrir sjöttu Die Hard-myndina og allar líkur á að Bruce Willis snúi aftur sem John McClane.
Það virðist vera mikill áhugi fyrir sjöttu Die Hard-myndina og allar líkur á að Bruce Willis snúi aftur sem John McClane. Vísir/Getty
Handritshöfundurinn Eric D. Wilkinson vill ólmur fá að skrifa handrit sjöttu Die Hard-myndarinnar og fór heldur óhefðbundna leið til að ná til augna kvikmyndavera. Hann keypti heilsíðu auglýsingu í bandaríska blaðinu TheHollywoodReporter til að birta opið bréf til leikarans BruceWillis, leikstjórans LenWiseman og framleiðandans LorenzodiBonaventura.

Opna bréfið er hugmynd Wilkinson að sjöttu DieHard myndinni sem myndi segja frá einum þekktasta rannsóknarlögreglumanni hvíta tjaldsins John McClane sem aðdáendur hafa fylgt eftir í 27 ár.

Um er að ræða þekktasta hlutverk leikarans BruceWillis sem hefur leikið McClane fimm sinnum í Die Hard-seríunni og er Wilkinson vongóður um að handrit hans verði notað fyrir sjöttu myndina.

Langt leiddur Die Hard-fíkill

Wilkinson
segist sjálfur vera langt leiddur fíkill þegar kemur að Die Hard-myndunum en hann leggur til að sjötta myndin sýni John McClane á sínum yngri árum, þar sem hann rannsakar morð á barni, og John McClane í nútímanum þar sem hann reynir að stöðva árás hryðjuverkamanna á meðan fangelsisóeirðir standa yfir.

Saga Wilkinsons hefst þegar McClane er fangelsaður fyrir morð á manni sem var grunaður um mansal. Það sem McClane veit ekki er að tveir stórhættulegir hryðjuverkamenn eru fyrir í þessu fangelsi. Má því ætla að hryðjuverkamennirnir fái að kynnast útsjónarsemi og óþreytandi elju McClanes í þessum rammgerða fangelsi ef hugmynd Wilkinsons verður að veruleika. Nú þegar hefur auglýsingin verið birt á Instagram og má sjá hana hér fyrir neðan:

LenWiseman, sá sem leikstýrði fjórðu Die Hard-myndinni LiveFree or DieHard, hefur staðfest að sjötta myndin er í framleiðsluferli og birti mynd á Instagram-síðu sinni í október sem gaf það til kynna.

Sjá einnig: Sjötta Die Hard mun gerast í nútímanum og fortíðinni

Um miðjan október mánuð var síðan greint frá því að bandaríska kvikmyndaverið Fox ynni hörðum höndum að því að láta sjöttu Die Hard-myndina verða að veruleika. Þá var greint frá því að myndin sem Fox vonaðist til að framleiða yrði einskonar forsaga McClanes sem myndi fylgja honum eftir þegar hann stígur sín fyrstu skref sem lögreglumaður í New York-borg árið 1979 en myndi einnig segja samhliða frá McClane í nútímanum. Því virðist Wilkinson hafa fylgt þeirri forskrift sem var gefin að sjöttu myndinni í október síðastliðnum.

Hér fyrir neðan má sjá hans viðbrögð við þessu öllu saman:

Fordæmi eru fyrir slíkri frásögn af McClane. Árið 2009 sendi myndasagnaútgáfan Boom! Studios frá sér myndasögu sem sagði frá nýliðanum John McClane þegar  mikil hátíðarhöld eiga sér stað í  NewYork árið 1979 í tilefni þess að 200 ár voru liðin frá því að Bandaríkin urðu að sjálfstæðri þjóð.

Wilkinson er ekki stærsta nafnið í heimi handritshöfunda en hann hefur framleitt myndir á borð við The Man FromEarth, Sparks og Subterranea.

Sjá má stiklu úr The Man fromEarth hér fyrir neðan:






Fleiri fréttir

Sjá meira


×