Bíó og sjónvarp

Die Antwoord: Saka framleiðendur Suicide Squad um stuld

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Yolandi segist vita að framleiðendur hafi notað ímynd þeirra við gerð myndarinnar.
Yolandi segist vita að framleiðendur hafi notað ímynd þeirra við gerð myndarinnar. Vísir
Suður-afríska rappteknósveitin Die Antwoord, sem gerði allt vitlaus í Reykjavík á síðustu Secret Solstice hátíð, hafa sakað framleiðendur kvikmyndarinnar Suicide Squad um að stela lúkkinu sínu.

Sveitin bjó til myndband og deildi á Instagram undir yfirskriftinni „Jocking“ sem er víst nýyrði yfir að herma eftir stíl annars. Í færslu myndbandið, sem má sjá hér fyrir neðan, segja liðsmenn að framleiðendur myndarinnar hafi haft samband áður en myndin var frumsýnd en eftir að hún hafi verið gerð.

Leikarar sögðu framleiðendur sífellt að vera tala um Die Antwoord

„Var það til þess að það yrði ok þegar við myndum sjá hvernig þið bituð í leturstílinn okkar og opnunaratriði okkar fyrir Umshiniwam og öll smáatriðin sem þið stáluð sem aðrir taka ekki eftir en við sjáum? Cara og Jared sögðu okkur hversu mikið þið voruð alltaf að tala um okkur en þið báðuð aldrei um leyfi til þess að stela frá okkur,“ skrifar Yolandi Visser á Instagram.

Í textanum kemur einnig fram að rapparinn Ninja hafi sent þeim textaskilaboð til þess að spyrja hvað væri eiginlega í gangi og að hann fékk aldrei nein svör.

„Svo buðu þið okkur á myndina (sem ég nennti ekki á) en Ninja fór þar sem hann hélt kannski að þið væruð flottir gaurar og að þetta væri bara smá misskilningur. Svo þurfti hann að sitja yfir þessari kjaftæðis mynd. Eftir á dirfðust þið til þess að spyrja hvernig gengi með bros á vör. Hann neyddist til þess að vera góður af því að hann var þarna með barninu sínu. En okkur finnst þið allir vera glataðir. Þú ættir að búa til gengi sem heitir; „ég er falskur fugl“ og spyrja Kanye hvort hann vilji vera með.“

Myndbandið og færslu Yolandi Visser má sjá í heild sinni hér fyrir neðan.

yes David Ayer u jockin our style. callin ninja up before your movie came our pretendin 2b down, so it looks OK when u bite our black & white graf style & our opening sequence to umshiniwam & an all da lil tiny details u nibbeld dat other people wont see but we notice. Cara & Jared told us how much u were talkin abt us on set but u never asked our permision to rip us off. An when ninja texted u sayin wassup wif dat u said nothin like a scared lil bitch. U were jus flauntin our names pretendin to b down. u aint down an u never will b. but before we knew da extent of ur two face nature - u invited us to ur movie premiere(which i didnt wanna go to) but ninja went , tinkin ur solid guy an mayb there was jus a lil 'misunderstandin'. Den poor ninja had to sit thru dat hole bullshit movie. An u even got da nerve to say wassup to him smilin - an ninja has to b nice cus he is there wif his kid. But we all tink u wack. U shud start a crew called:,'im a fake fuck' ask kanye if he wants to join u. Cum show ur pretty face at my studios. U know Muggs & u know where da Soul Assasin Studios at. we watin for u. @djmuggs_the_black_goat_ @zef_alien @boojie_baby_ @ragingzefboner @_dark_force_ @dejanvisser @djhitekisgod @jipsi518

A video posted by ¥O-LANDI VI$$ER (@prawn_star) on


Tengdar fréttir

Die Antwoord gefa út nýtt mixteip

Verðandi Íslandsvinir voru að henda út 12 laga mixteipi en fjórða breiðskífa sveitarinnar er væntanleg í sumar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×