„Ísland og Bandaríkin hafa alla tíð átt í öflugu viðskiptasambandi," segir Bob Hannah, svæðisstjóri sölumála Delta í Evrópu. „Sterkar flugsamgöngur á milli landanna, líkt og Delta býður upp á, eru lykill að því að nýta þetta samband til hagsbóta fyrir íslenskt efnahagslíf, bæði að því er varðar útflutning á íslenskum vörum til Bandaríkjanna sem og flutning ferðamanna til Íslands," segir hann ennfremur.
„Í tilefni af því að félagið mun senn hefja áætlunarflug milli landanna á ný, býður Delta upp á ferðir frá Keflavík til New York á sérstöku kynningarverði, 63.000 krónur fyrir miða á alemennu farrými (economy class), að sköttum og gjöldum meðtöldum. Tilboðið gildir fyrir öll flug á tímabilinu frá 2. júni til 3. september, sem bókuð eru fyrir 3. maí næstkomandi. Gert er ráð fyrir því að dvalið sé í Bandaríkjunum aðfaranótt sunnudags."