Fótbolti

Del Bosque: Allur leikmannahópurinn á þennan titil

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
AFP
"Þetta var erfiður leikur en við eigum stórkostlega leikmenn sem vissu hvernig átti að bregðast við vandamálunum sem upp komu," sagði Vicente del Bosque, þjálfari Spánverja. Hann stýrði liðinu til heimsmeistaratitilsins í kvöld.

"Hollendingar áttu nokkur góð færi en við líka. Þetta er vinna marga leikmenna, alls leikmannahópsins," sagði þjálfarinn.

"Við fórum inn í leikinn með það hugarfar að vinna, en líka að þetta væri stærra en það. Þetta er ótrúlegt og jarðaberið ofan á tertuna. Þetta tryggir sess okkar í sögunni," sagði þjálfarinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×