Enski boltinn

Debuchy á leið til Arsenal

Anton Ingi Leifsson skrifar
Debuchy ásamt verðandi samherja sínum hjá Arsenal, Giroud.
Debuchy ásamt verðandi samherja sínum hjá Arsenal, Giroud. Vísir/Getty
Franski landsliðsmaðurinn Mathieu Debuchy er að ganga í raðir Arsenal frá Newcastle, en þetta staðfesti hann í viðtali við franska sjónvarpsstöð.

Debuchy er ætlað að fylla skarð Bacary Sagna hjá Arsenal sem gekk í raðir Manchester City á frjálsri sölu.

„Já, ég mun ganga í raðir Arsenal fyrir næsta tímabil," sagði Debuchy við frönsku sjónvarpsstöðina, TF1.

Arsenal hefur enn ekkert gefið út varðandi félagsskiptin, en þau hafa legið í loftinu í dágóðan tíma.

Debuchy kom til Newcastle í upphafi árs árið 2013 og hefur skorað eitt mark í 43 leikjum, en þar áður spilaði hann rúma 200 leiki fyrir franska liðið, Lille.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×