Dauðlangar að vinna á Íslandi

Fréttablaðið Innlent 25. febrúar 2012 21:30
Atli Örvarsson segist vilja stefna í þá átt að taka að sér fleiri smærri og listrænni verkefni til mótvægis við Hollywood-myndirnar sem hann hefur unnið við síðustu árin. „Þannig gæti draumurinn ræst,“ segir hann.
Atli Örvarsson segist vilja stefna í þá átt að taka að sér fleiri smærri og listrænni verkefni til mótvægis við Hollywood-myndirnar sem hann hefur unnið við síðustu árin. „Þannig gæti draumurinn ræst,“ segir hann. mynd/Anton
Tónskáldið Atli Örvarsson hefur búið í Bandaríkjunum í nítján ár og samið tónlist við mýmargar Hollywood-kvikmyndir, sjónvarpsþætti og fleira. Kjartan Guðmundsson ræddi við Atla um fortíðina í poppinu og hugmyndaþurrð í draumaverksmiðjunni.

„Einhver spurði mig um daginn hvort ég væri kominn heim til Íslands til að núllstilla mig. Sú lýsing þykir mér ansi góð, en fyrst og fremst finnst mér mikilvægt að koma heim öðru hverju til að tengjast landi og þjóð, fjölskyldunni og náttúrunni," segir tónskáldið Atli Örvarsson sem sest niður yfir kaffibolla með blaðamanni í stuttu stoppi hér á landi. Atli, sem hefur getið sér gott orð fyrir kvikmyndatónlist sína, meðal annars fyrir rándýrar Hollywood-kvikmyndir, hefur búið í Bandaríkjunum í nítján ár og þar af fjórtán í sjálfri Borg englanna sem hýsir draumaverksmiðjuna.

Hann kemur þó ekki aðeins til Íslands þegar gloppur opnast í þéttskipaðri stundarskrá tónskáldsins heldur reynir hann að ferðast eins mikið og hann mögulega getur til að komast í nýtt umhverfi og öðlast innblástur. „Þannig hleð ég sköpunarbatteríin. Reyndar er ég frekar óduglegur við að kanna mismunandi heimshluta og enda nánast alltaf í Suður-Evrópu og þá helst á Ítalíu eða í Frakklandi. Sagan, arkitektúrinn og lífsstíllinn heilla mig og þar vinnur fólk til að lifa, en lifir ekki til að vinna eins og í Bandaríkjunum. Ætli við Íslendingar séum ekki einhvers staðar mitt á milli, rétt eins og í landfræðilegum skilningi."

Í smá snertingu við náttúruna

Hvað hefurðu haft fyrir stafni í þessum skreppitúr til Íslands?

„Ég heimsótti fjölskylduna á heimaslóðir á Akureyri og fór í Bárðardalinn, þar sem ég komst í smá snertingu við náttúruna, þótt gaddfreðin hafi verið og öll undir snjó. Ég var líka að hjálpa tónlistarmanninum Ólafi Arnalds vini mínum með því að stjórna hljómsveitarupptöku í Kaldalóns-sal Hörpu fyrir nýjustu plötuna hans. Ég gef mig reyndar ekki út fyrir að vera hljómsveitarstjóri, en hef reynslu af því að taka upp í svona umhverfi og það er ákveðin verkkunnátta sem fylgir slíkri upptöku, ákveðin trix sem lærast til að ná sem bestum árangri á sem stystum tíma. Svo skellti ég mér á Edduverðlaunahátíðina, þar sem ég var tilnefndur fyrir tónlistina við kvikmyndina Eagle eftir leikstjórann Kevin MacDonald. Á svona samkomum má segja að maður kynnist gömlum vinum, fólki sem maður hefur ekki hitt í fjöldamörg ár, og kynnist líka nýju fólki. Það er gaman að fá innsýn í þennan heim hér á Íslandi."

Hefðirðu áhuga á að vinna við íslenskar kvikmyndir?

„Já, mig dauðlangar til þess, og í raun er það ekki spurning um hvort heldur hvenær ég geri það. Ég hef reyndar samið tónlist fyrir stuttmynd sem Páll Grímsson, sem býr líka í Bandaríkjunum, leikstýrði og heitir Pension Gengið. En ég tæki hverju tækifæri til að vinna hér mjög fagnandi."

Sakna ekki sviðsins

Atli er fæddur árið 1970 og er sonur hins landsþekkta tónlistarmanns og harmonikkuleikara Örvars Kristjánssonar. Atli hlaut því eðlilega afar tónlistarlegt uppeldi, lék upphaflega á trompet með skóla-, sinfóníu- og lúðrasveitum en heillaðist af svuntuþeysum og öðrum hljómborðum á unglingsárum. Árið 1986 stofnaði hann hljómsveitina Stuðkompaníið ásamt Karli bróður sínum og fleirum, sem vann Músíktilraunir árið eftir, og síðar lék hann til lengri eða skemmri tíma með Todmobile, SSSól og Sálinni hans Jóns míns, lengst af þó með síðastnefndu sveitinni.

Í minningunni varstu lítið fyrir að trana þér fram á þessum árum í kringum 1990, þrátt fyrir að hafa leikið með nokkrum af vinsælustu hljómsveitum landsins. Er það rétt?

„Ég veit það ekki. Kannski veljast ákveðnar manngerðir í ákveðin hlutverk innan hljómsveita og hljómborðsleikararnir eru nánast aldrei mjög áberandi. Karl bróðir minn er til dæmis meira út á við en ég, sem er töluvert hlédrægari. Á hinn bóginn er ég mjög félagslyndur og mikill áhugamaður um mannlegt eðli, en það hentar mér betur að vinna bak við tjöldin og ég hef afskaplega lítinn áhuga á að vera uppi á sviði."

Var það ástæða þess að þú kúplaðir þig út úr bransanum og hófst nám við Berklee-tónlistarháskólann í Boston árið 1993?

„Já, að hluta til. Ég hafði spilað svo mikið og lengi opinberlega og drukkið of mikið úr pottinum þegar ég var ungur, rétt eins og Steinríkur. Fólk spyr mig oft hvort ég sakni þess, en ég svara því hreinskilnislega neitandi. Ég fann mig heldur aldrei nægilega vel í því að semja popplög, auk þess sem ég vildi herja á erlenda markaði en fyrir því var ekki áhugi innan þeirra sveita sem ég lék með. Ég skipti því um gír og fór að gera eitthvað allt annað. Ég hafði lengi haft áhuga á bíómyndum og kvikmyndatónlist og strax í fyrsta verkefninu í skólanum varð ég fyrir hálfgerðri vitrun eða köllun. Þessi galdur sem verður til þegar tónlist og mynd koma saman, og er miklu áhrifameiri en summan af þessu tvennu, heillaði mig strax og ég er stórkostlega þakklátur fyrir að hafa fundið þessa fjöl."

Gæfuspor að kynnast Hans Zimmer

Tónskáldið lauk MA-námi í kvikmyndatónlist frá Berklee í Boston og flutti síðan til Los Angeles þar sem hann komst meðal annars í læri hjá sjónvarpsþáttatónskáldinu Mike Post. Starfinu með Post þakkar Atli öll þau tækifæri sem síðan hafa boðist honum í Hollywood.

Varla hefur leiðin verið svo greið inn í þennan erfiða og eftirsótta bransa?

„Nei, alls ekki. Á köflum vissi ég ekki hvað ég var að gera í Los Angeles og var í peningavandræðum eins og gengur. Einn Valentínusardaginn frétti ég að hægt væri að vinna sér inn fé með því að gerast blómasendill. Ég stökk í það, enda skítblankur, en reiknaði ekki með þessum miklu fjarlægðum í borginni og komst því yfir mun færri sendingar en ég hélt. Að frádregnum bensínkostnaði þénaði ég líklega um fimm þúsund krónur íslenskar yfir daginn. það var frekar svekkjandi og líklega lágpunkturinn, en það er hægt að hlæja að þessu eftir á. Ég var svo heppinn að fá fasta vinnu hjá Mike Post og við vorum iðulega að semja tónlist fyrir um 120 sjónvarpsþætti á nokkrum mánuðum, sem eru undarlega mikil afköst. Ég skal vera fyrstur til að viðurkenna að margt af þessari tónlist var ekki ýkja spennandi, en svona vinna kennir manni að semja hratt og skilja kvikmyndagerð upp að ákveðnu marki. Eftir nokkur ár með Post starfaði ég sjálfstætt, gerði meðal annars tónlist fyrir sjónvarpsþætti og kvikmyndina Stuart Little 3, en kynntist svo Hans Zimmer árið 2007. Það var mikið gæfuspor."

Hinn þýski Hans Zimmer er eitt af virtustu og afkastamestu kvikmyndatónskáldunum í Hollywood með yfir hundrað kvikmyndir á ferilskránni, þar á meðal stórmyndir á borð við Rain Man, The Lion King, Gladiator og Inception. Zimmer rekur einnig stórt tónlistarframleiðslufyrirtæki sem hýsir fjölda hljóðvera og bauð Atla að flytja sitt hljóðver til sín, sem sá síðarnefndi þáði með þökkum.

Hvernig er að vinna með Hans Zimmer?

„Það er algjör lúxus og í gegnum hann hef ég meðal annars kynnst yfirmönnum tónlistardeilda kvikmyndavera, sem hefur leitt til fleiri og stærri verkefna. Zimmer vinnur gjarnan þannig að hann semur mikið af stefjum, en svo er hópur fólks í því að aðlaga stefin að myndunum. Ég hef hjálpað honum á þennan hátt með myndir eins og Pirates of the Carribean 3 og Simpsons-bíómyndina og lært heilmikið. Zimmer er mikill brautryðjandi og hefur í raun hannað nýjar aðferðir varðandi það hvernig kvikmyndatónlist er gerð með tölvum og tækni."

Draumurinn að rætast

Atli, sem sjálfur hefur samið tónlist við Hollywood-myndir á borð við Vantage Point með Dennis Quaid og Forest Whitaker, Babylon A.D. með Vin Diesel, Thick as Thieves með Antonio Banderas og Morgan Freeman og Season of the Witch með Nicholas Cage á síðustu árum, auk annarra verkefna, segist líta á starfið með Hans Zimmer sem eins konar doktorsnám í kvikmyndatónlist.

„Þetta doktorsnám hefur kennt mér að starfið snýst 20% um tónlist og 80% um sálfræði og pólitík í Hollywood. Sem dæmi gerði ég tónlistina við Babylon A.D. með franska leikstjóranum Mathieu Kassovitz. Í upphafi leyfði ég honum að heyra helstu stefin sem ég hafði samið og bjóst svo við að hann myndi vilja fylgjast daglega með framganginum, en hann hélt nú ekki, sagðist hafa valið mig til að gera tónlistina og ég ætti bara að gera það. Kannski er þetta lýsandi fyrir franska vinnumenningu og virðinguna fyrir listamanninum. Þú segir ekki ostagerðarmeistaranum hvernig hann á að búa til ostinn. En í Hollywood er oftast heljarstór nefnd með puttana í öllu, leikstjórinn, fjórir framleiðendur, yfirmaður tónlistardeildar myndversins, yfirmaður hljóðversins og aðstoðarfólk þeirra allra, og allir með sínar skoðanir á því hvernig tónlistin á að vera. Úr þessu verður oft mikil málamiðlun og í raun held ég að slík málamiðlun standi Hollywood dálítið fyrir þrifum almennt. Til dæmis er sífellt verið að endurgera myndir, frá Evrópu og fleiri stöðum, sem lýsir greinilegri hugmyndaþurrð og meðalmennsku. Tökum til dæmis myndina The Artist sem ég held að vinni Óskarinn fyrir bestu myndina núna um helgina. Það eru engar líkur á að bandarískur kvikmyndagerðarmaður hefði fengið tækifæri til að gera þögla og svarthvíta mynd af þessari stærðargráðu."

Áttu þér óskaverkefni?

„Það væri þá helst að prófa eitthvað nýtt og ekki endurtaka mig. Sjálfur horfi ég á mun listrænni myndir í frítíma mínum en þær sem ég vinn oftast við. Í raun mætti segja að stefnan hjá mér sé að vinna meira með evrópskum leikstjórum. Ég hef fyrir reglu að tala ekki um verkefni sem ekki er búið að negla alveg niður, en það er ýmislegt á döfinni í þeim efnum og svo virðist sem ég gæti fljótlega náð góðu jafnvægi milli Hollywood-mynda og smærri, listrænni verkefna. Þannig gæti draumurinn ræst."

Fleiri fréttir - Innlent

Innlent 24. maí. 2012 11:21

Ekki þorandi að flytja Börk í dóminn - úrskurðað um varðhald í fangelsinu

Kveða átti upp gæsluvarðhaldsúrskurð yfir Annþóri Kristjáni Karlssyni og Berki Birgisson í...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 11:58

Féllu af syllu í Dyrhólaey

Fjórir ferðamenn duttu niður af syllu í Dyrhólaey í dag þegar hún gaf sig og slösuðust þrí...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 11:09

Viðbrögð Grétu og Jónsa - myndband

Gréta Salóme og Jónsi stóðu sig með stakri prýði í forkeppni Eurovision á þriðjudaginn. Þa...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 11:00

Allt að þriggja ára fangelsi liggur við brotum starfsmannanna

Fyrrverandi lögreglumennirnir hjá sérstökum saksóknara gætu átt yfir höfði sér allt að þri...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 08:01

Verkfall í Noregi

Um 25 þúsund opinberir starfsmenn í Noregi hófu í morgun verkfallsaðgerðir eftir að samnin...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 10:10

Björk í samstarfi við bókasafn í New York

Björk Guðmundsdóttir er komin í samstarf við bókasafn í New York og aðrar stofnanir. Verke...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 09:17

Hreindýr valda usla hjá ökumönnum

Hreindýr hafa verið á ferli í kringum Hallormsstaðaskóg undanfarið en um er að ræða hóp ta...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 07:30

Barn fann amfetamín í leikskólanum

Fimm ára drengur fann í febrúar poka með amfetamíni á leikskólanum Jörfa. Nóg til að valda...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 07:00

Þyrla sótti veikan sjómann

Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LÍF, sótti veikan sjómann í gær af bát sem var að veiðum aus...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 07:00

Vill ekki gefa ungu fólki falsvonir

Mögulegt er að lækka þurfi ávöxtunarkröfu lífeyrissjóðanna úr 3,5% vegna efasemda um að sv...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 06:30

Vill að borgin stöðvi háhýsi úr fortíðinni

Íbúi í Vesturbænum vill að borgin hindri að sjö hæða hús rísi við höfnina. Byggingin var s...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 06:00

Sterkt efni getur hæglega verið banvænt

Hálft til eitt gramm af amfetamíni getur verið stórhættulegt börnum, til dæmis ef þau mynd...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 06:00

Veiðimenn vilja gott sambýli

Borgarstjórn hefur samþykkt breytingu á deiliskipulagi sem gerir líkamsræktarfyrirtækinu B...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 05:30

Samstarf um norðurslóðamál

Háskólinn á Akureyri og Háskóli Pierre et Marie Curie skrifuðu undir viljayfirlýsingu um s...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 05:30

Gamla lánið er enn hagstæðast

Stjórn Faxaflóahafna hafnar öllum átta tilboðunum sem bárust í endurfjármögnun á langtímal...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 05:30

Borgin byggir upp skólalóðir

Sett verða upp ný boltagerði við tvo grunnskóla í Reykjavík í sumar; Breiðagerðisskóla og ...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 05:30

Frakkar stórir í þorskkaupum

Fiskkaupendur í Frakklandi keyptu á fyrsta ársfjórðungi þessa árs 45% meira af ferskum þor...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 05:00

Eiga 25.000 skópör á lagernum

Ný íþróttavöruverslun undir merkjum Sports Direct opnar við Smáratorg í Kópavogi á laugard...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 05:00

ESA skýrir samkeppnisreglur sínar

ESA, eftirlitsstofnun EFTA, hefur tekið upp nýjar reglur sem skýra eiga hvenær samkeppnisa...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 05:00

Annþór og Börkur harðneita allri sök

Tveir kunnir ofbeldismenn og refsifangar á Litla-Hrauni neita því alfarið að bera ábyrgð á...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 04:30

Alls eru 94 stjórnarfrumvörp óafgreidd

Samkvæmt starfsáætlun verður þingi frestað 31. maí og því aðeins fjórir þingdagar eftir. F...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 04:30

Aðalstigi fæst ekki færður

Byggingarfulltrúinn í Reykjavík hefur hafnað veitingu leyfis fyrir ýmsum breytingum innand...  

Meira
Innlent 23. maí. 2012 22:37

Sóldögg kemur fram á Bestu útihátíðinni

„Það verður löðrandi nostalgía á Bestu útihátíðinni í sumar." Þetta segir Bergsveinn...  

Meira
Innlent 23. maí. 2012 21:30

Krefjast þingrofs og kosninga á mismunandi forsendum

"Þetta hefur ekkert með stjórnmálaflokka að gera,“ segir Ásta Hafberg, en hún talar ...  

Meira
Innlent 23. maí. 2012 21:15

Nærmynd af Ara Trausta

Vísindamanninum, rithöfundinum og forsetaframbjóðandanum Ara Trausta Guðmundssyni er lýst ...  

Meira
Innlent 23. maí. 2012 21:00

Innan við 10 manns á ári myndu nýta sér staðgöngumæðrun

"Í mínu starfi hef ég hitt mörg pör sem eiga þann draum að eignast börn,“ segir Guðm...  

Meira
Innlent 23. maí. 2012 20:30

Kvótalaus útgerðarmaður fer í olíuleit í Drekasvæðinu

Útgerðarmaður kvótalauss fiskiskips úr Vestmannaeyjum ætlar næstu þrjá mánuði að nýta skip...  

Meira
Innlent 23. maí. 2012 20:00

Berst fyrir bættum hag útigangsmanna

Ung kona sem missti vin sinn, þrjátíu og tveggja ára gamlan útigangsmann, berst fyrir því ...  

Meira
Innlent 23. maí. 2012 19:52

Hannes og Ástþór fá frest fram á föstudag til að skila meðmælum

Yfirkjörstjórnir Reykjavíkurkjördæma norður og suður hafa staðfest meðmælenda lista frambj...  

Meira
Innlent 23. maí. 2012 19:38

Tvöfaldur pottur í Víkingalottóinu í næstu viku

Fyrsti vinningur gekk ekki út í Víkingalottóinu í kvöld. Vinningstölurnar voru 11, 21, 23,...  

Meira
Innlent 23. maí. 2012 19:30

Erfðabreyttar mýs í tilraunir

Íslenskt rannsóknarfyrirtæki hefur fengið leyfi til að nota erfðabreyttar mýs í tilraunir....  

Meira
Innlent 23. maí. 2012 18:45

Segjast hafa reynt að aðstoða fangann

Annþór Kristján Karlsson og Börkur Birgisson segja engar barsmíðar hafa átt sér stað inni ...  

Meira
Innlent 23. maí. 2012 18:45

Átján ára ökumaður ákærður fyrir manndráp af gáleysi

Átján ára piltur hefur verið ákærður fyrir manndráp af gáleysi. Farþegi í bíl hans, Eyþór ...  

Meira
Innlent 23. maí. 2012 18:30

Unnu sem verktakar fyrir sérstakan saksóknara

Tveir lögreglumenn hafa verið kærðir til ríkissaksóknara fyrir brot á þagnarskyldu í starf...  

Meira
Innlent 23. maí. 2012 18:22

Krafist þingrofs í undirskriftasöfnun

Óskað er eftir þingrofi og kosningum í undirskriftasöfnun sem hófst í dag. Á vefsíðunni er...  

Meira
Innlent 23. maí. 2012 17:30

Páll Óskar telur Ísland sigurstranglegt í Eurovision

"Þetta var stórkostlegur flutningur,“ segir Páll Óskar en hann var gestur í útvarpsþ...  

Meira
Innlent 23. maí. 2012 16:38

Sérstakur saksóknari kærir tvo starfsmenn sína til ríkissaksóknara

Tveir lögreglumenn, fyrrum starfsmenn embættis sérstaks saksóknara, hafa verið kærðir til ...  

Meira
Innlent 23. maí. 2012 16:08

Gunnar Birgisson íhuga að áfrýja

Gunnar I. Birgisson, fyrrverandi bæjarstjóri í Kópavogi og stjórnarformaður Lífeyrissjóðs ...  

Meira
Innlent 23. maí. 2012 16:03

Krefjast gæsluvarðhalds yfir Annþóri og Berki

Annþór Karlsson og Börkur Birgisson voru færðir fyrir dómara nú á fjórða tímanum en krafis...  

Meira
Innlent 23. maí. 2012 14:50

Füle kemur til Íslands

Štefan Füle, framkvæmdastjóri stækkunar- og nágrannastefnu Evrópusambandsins, verður ...  

Meira
Innlent 23. maí. 2012 14:44

Munu opna Boot Camp í Elliðaárdal

Eigendur Boot Camp munu geta opnað líkamsræktarstöð í Elliðaárdal í sumar. Þetta var ljóst...  

Meira
Innlent 23. maí. 2012 14:22

Allt að 25 stiga hita spáð um næstu helgi

Allt að 25 stiga hita er spáð á landinu um næstu helgi. Það er hvítasunnuhelgin og má búas...  

Meira
Innlent 23. maí. 2012 13:49

Á annan tug ökumanna stöðvaður

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði á annan tug ökumanna í gær og fyrradag. Þessir öku...  

Meira
Innlent 23. maí. 2012 13:41

Vill að Alþingi beiti sér í málum Asera og Armena

Zakir Jón Gasanov, formaður Vináttufélags Íslands og Aserbaídsjan, hvetur Alþingi Íslendin...  

Meira
Innlent 23. maí. 2012 12:15

Skuldamál Regnbogabarna fyrir dóm

Höfundur barnabókar um forvarnir gegn einelti hefur stefnt Regnbogabörnum fyrir að hafa ek...  

Meira
Innlent 23. maí. 2012 11:35

Tæplega 4 ára fangelsi fyrir vopnuð rán

Liðlega þrítugur karlmaður, Mark Gunnar Roberts, hefur verið dæmdur í þriggja og hálfs árs...  

Meira
Innlent 23. maí. 2012 10:27

Annþór og Börkur í yfirheyrslum í dag

Þeir Annþór Kristján Karlsson og Börkur Birgisson sem eru grunaðir um að hafa orðið samfan...  

Meira
Innlent 23. maí. 2012 07:08

Sótti veikan sjómann

Sjómaður veiktist alvarlega um borð í íslensku nótaskipi austur af Hornafirði í nótt og ós...  

Meira
Innlent 23. maí. 2012 07:04

Presley kom til bjargar - dró bát til Grindavíkur

Hætta skapaðist í nótt þegar vélin bilaði í litlum fiskibáti með einum manni um borð, þega...  

Meira
Innlent 23. maí. 2012 07:00

Þyrla slökkti mosaeld með fötu

TF-LÍF, þyrla Landhelgisgæslunnar, aðstoðaði Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins við að slökkv...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Fréttir / Innlent / Dauðlangar að vinna á Íslandi