Handbolti

Daníel lykillinn að sigri SönderjyskE

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Daníel var góður í dag
Daníel var góður í dag vísir/Stefán
Markvörðurinn Daníel Andrésson var hetja danska úrvalsdeildarliðsins SönderjyskE sem lagði Odder 28-25 í úrvalsdeildinni í dag á heimavelli.

Daníel kom í mark SönderjyskE þegar liðið var þremur mörkum undir 23-20 og rúmur stundarfjórðungur eftir af leiknum.

Daníel fékk aðeins tvö mörk á sig og lið hans vann góðan sigur en SönderjyskE er í öðru sæti deildarinnar með 13 stig, fjórum stigum á eftir Kolding sem Aron Kristjánsson þjálfar.

Odder er í neðsta sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×