Dalai Lama trekkti að í Háskólanum 2. júní 2009 12:08
Dalai Lama, friðarverðlaunahafi Nóbels, heimsótti Háskóla Íslands í morgun og flutti erindi í Hátíðasalnum í boði rektors Háskólans og Hugvísindasviðs HÍ. Mjög létt var yfir samkomunni og hlógu áheyrendur margsinnis dátt og innilega með Dalai Lama að því er fram kemur í tilkynningu frá skólanum Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, bauð Dalai Lama velkominn og sagði í máli sínu að það væri skólanum afar mikill heiður að fá hann í heimsókn. Kristín sagði að heimsóknin væri á hárréttum tíma fyrir Íslendinga þar sem hér væri verið að endurhugsa siðferðileg gildi samfélagsins. Þá segir í tilkynningunni að Dalai Lama hefði, í gegnum tíðina, lagt sig fram við að byggja brýr milli mismunandi samfélaga og vekja athygli á mikilvægi siðferðilegra gilda. „Að því búnu flutti Dalai Lama erindi þar sem meðal annars kom fram að hann teldi að menntun væri mannkyninu afar mikilvæg en nauðsynlegt væri að vekja meiri athygli á siðferðilegum gildum. Til dæmis hefði nútímatækni og mikil þekking leitt til haturs- og ofbeldisverka, og í því efni minntist Dalai Lama á árásirnar 11. september 2001 í Bandaríkjunum." Eftir ávarp Dalai Lama stýrði Ástráður Eysteinsson, forseti Hugvísindasviðs samræðum Dalai Lama og þriggja háskólamanna, þeirra Páls Skúlasonar, prófessors í heimspeki, Sigríðar Þorgeirsdóttur, dósents í heimspeki og Péturs Péturssonar, prófessors í guðfræði. „Mikill fjöldi stúdenta, kennara og starfsmanna við Háskóla Íslands sótti samkomuna en fullyrða má að fullt hafi verið út úr dyrum í Háskóla Íslands í orðsins fyllstu," segir ennfremur. „Þegar í morgun hafði nokkur fjöldi safnast framan við Hátíðasalinn þar sem samræðurnar fóru fram en gestir gátu einnig fylgst með samkomunni á tjaldi í anddyri Aðalbyggingar skólans. Hátíðasalur Háskóla Íslands er fullsetinn þegar þetta er skrifað og áheyrendur hafa algerlega fyllt anddyri Aðalbyggingar og nær skarinn út á tröppur hússins. Setið er á gólfi og í stigum í Aðalbyggingu. Heimsókn Dalai Lama í Háskóla Íslands lýkur um hádegisbil."
Mest lesið Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Erlent Ætlar ekki að sitja undir ásökunum um barnaníð Innlent Íranir draga orð Trump til baka og vara fólk við að taka hann trúanlegan Erlent Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Innlent Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Innlent Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofning innan flokksins Innlent Eldur í Árbænum Innlent 107 fæddu heima og sjö án aðkomu heilbrigðisstarfsfólks Innlent Bretar samþykkja Wegovy pilluna fyrstir í Evrópu Erlent Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa Innlent Fleiri fréttir Sjö prósent 9 og 10 ára drengja á bið eftir greiningu Malbika á Reykjanesbraut í kvöld 107 fæddu heima og sjö án aðkomu heilbrigðisstarfsfólks Ætlar ekki að sitja undir ásökunum um barnaníð Eldar í grillum og kveikt í ruslagámi Fara fram á að fjármálaáætlunin sé endurreiknuð Eldur í Árbænum Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofning innan flokksins Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Eldfim staða, sorglegt áhugaleysi og ráðgáta Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Hafnar kreddum um verðbólguna Stefnir í uppbótartíma Starfsáætlun Alþingis kippt úr sambandi Tóku þátt í að uppræta rafmyntaþvætti sem teygði anga til Íslands Hótaði að beita skotvopni Finnur ekki fyrir sársauka Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa MDE vísar frá tveimur málum gegn Íslandi Flekahreyfingar innan Samfylkingar Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Ráðstöfun Baldurs til Eyja brjóti gegn samningi Samkeppniseftirlitið dragi upp skakka mynd af matvælaverðinu Brúin yfir Djúpafjörð boðin út Hermann Nökkvi verður aðstoðarmaður Vilhjálms Árnasonar Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Leggja til að mestu gljúfurkerfi landsgrunnsins verði vernduð „Ljóst að deilunni er ekki lokið“ Bein útsending: Funda um verðbólgu, verðlag og laun Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Sjá meira