Dagur Sigurðsson var kokhraustur fyrir undanúrslitaleikinn gegn hinu geysisterka liði Kiel í Meistaradeild Evrópu í morgun.
„Markmið okkar er að vinna Kiel," sagði Dagur á blaðamannafundi í Köln í gær en þar fer úrslitahelgi Meistaradeildarinnar fram. „Við höfum engu að tapa og er Kiel undir mun meiri pressu en við. Það gæti reynst okkur vel."
„Við höfum áður sýnt að við getum komið á óvart. Ég tel að þessi leikur sé sá allra mikilvægasti sem ég hef tekið þátt í á ferlinum."
Hann segist ekkert hafa velt því fyrir sér hvaða liði hann vilji mæta í úrslitum komist Füchse Berlin þangað. „Ég hef eingöngu verið að hugsa um leikinn gegn Kiel. Hvað mig varðar hættir jörðin að snúast á laugardagskvöldið. Við vitum vel að við erum mögulega að fara við besta lið allra tíma. En við eigum samt möguleika."
Skyttan Sven-Sören Christophersen tók í svipaðan streng. „Við komum ekki sem túristar til Kölnar og við ætlum ekki bara að liggja hér í sólbaði. Við bindum vonir við okkar möguleika í leiknum."
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Þórey Rósa Stefánsdóttir og Rut Jónsdóttir urðu í kvöld að sætta sig við silfrið í danska handboltanum. Lið þeirra, Team Tvis Holstebro, tapaði þá fyrir Midtjylland, 24-22.
Meira
Íslendingaliðið Grosswallstadt vann lífsnauðsynlegan sigur, 28-23, á Balingen í þýsku úrvalsdeildinni í kvöld. Liðið komst þar með upp að hlið Neuhausen en bæði lið eru í mikilli fallbaráttu. Neuhause...
Meira
"Bannið er hlægilegt! Það ætti að breyta þessari reglu,“ sagði Króatinn Ivan Nincevic, leikmaður Füchse Berlin, sem slasaðist illa þegar hann var skallaður í leik gegn Hamburg á dögunum.
Meira
Þjálfarinn Erlingur Richardsson er staddur í Austurríki þessa dagana og hefur verið þar alla vikuna að reyna að ganga frá samningi við austurríska úrvalsdeildarfélagið SG Insignis Handball Westwien. M...
Meira
Ólafur Stefánsson er besta hægri skyttan í 20 ára sögu Meistaradeildarinnar í handbolta en það var staðfest þegar íslenski landliðsmaðurinn og fjórfaldur meistari í Meistaradeildinni var valinn í úrva...
Meira
Þýska blaðið Bild birtir í dag myndir á vefsíðu sinni af Króatanum Ivan Nincevic sem slasaðist illa eftir að hafa verið skallaður í handboltaleik.
Meira
Eitt ljótasta brot sem sést hefur í þýska handboltanum í áraraðir átti sér stað í leik Hamburg og Füchse Berlin á þriðjudag. Aðeins 37 sekúndum fyrir leikslok gerði Torsten Jansen, leikmaður Hamburg, ...
Meira
Kielce, lið Þóris Ólafssonar, er aðeins einum sigri frá pólska meistaratitlinum í handbolta en liðið er komið í 2-0 í úrslitarimmunni gegn Wisla Plock.
Meira
Rhein-Neckar Löwen undir stjórn Guðmundar Þórðar Guðmundssonar vann á sunnudaginn EHF-bikarinn eftir 26-24 sigur á Nantes í Frakklandi. Titillinn er sá fyrsti sem félagið vinnur í ellefu ára sögu þess...
Meira
Þórey Rósa Stefánsdóttir skoraði sex mörk fyrir Tvis Holstebro í 23-27 tapi gegn Midtjylland í fyrri úrslitaleik liðanna um danska meistaratitilinn.
Meira
Alexander Petersson, Stefán Rafn Sigurmannsson og félagar í Rhein-Neckar Löwen urðu í dag Evrópumeistarar í handknattleik eftir 26-24 sigur á Nantes í úrslitaleik EHF-bikarsins í Frakklandi.
Meira
Rhen-Neckar Löwen mætir Nantes í úrslitum EHF-bikarsins í handbolta á morgun eftir að hafa sigraði Göppingen 28-22 í undanúrslitum í Nantes í dag.
Meira
Nantes er komið í úrslit EHF-bikarsins eftir góðan 26-20 sigur á danska liðinu Team Tvis Holstebro en úrslitahelgi EHF-bikarsins er leikin í Nantes.
Meira
Einar Ingi Hrafnsson og félagar í Mors-Thy Håndbold þurftu að sætta sig við 25-26 tap á heimavelli á móti Skjern Håndbold í fyrsta leik liðanna í einvíginu um bronsverðlaunin í dönsku handboltadeildin...
Meira